Enski boltinn

Kompany: Sergio Aguero er okkar einstaki leikmaður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Aguero.
Sergio Aguero. Vísir/Getty
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, hrósaði argentínska framherjanum Sergio Aguero í hástert, eftir 3-2 sigurinn á Bayern München í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Aguero skoraði öll mörk City-liðsins í leiknum þar af tvö þau síðustu á síðustu fimm mínútunum.

„Hann sér til þess að við eigum möguleika á því að ná markmiðum sem við höfðu aldrei átt möguleika á því að ná annars," sagði Vincent Kompany við ITV-sjónvarpsstöðina.

„Hann er okkar einstaki leikmaður. Ef þú ætlar að ná árangri þá er nauðsynlegt að hafa einstakan leikmann í einstöku formi," sagði Kompany.

Sergio Aguero hefur skorað 17 mörk í 18 leikjum á tímabilinu í öllum keppnum þar af fimm mörk í síðustu fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni.

Knattspyrnustjórinn Manuel Pellegrini sparaði heldur ekki hrósið. „Ég hef alltaf sagt að Sergio sé einn af bestu knattspyrnumönnum heims. Hann spilaði mjög vel á móti Bayern en allt liðið spilaði líka vel og þá sérstaklega í seinni hálfleiknum," sagði Pellegrini við BBC.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×