Handbolti

Kolding aftur á sigurbraut

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í KIF Kolding Kobenhavn hristu af sér vonbrigði síðasta leiks og unnu öruggan tólf marka sigur, 29-17, á Skanderborg í dag.

Koldig tapaði sínum fyrsta deildarleik gegn Álaborg á þriðjudaginn, en dönsku meistararnir áttu ekki í neinum vandræðum með Skanderborg sem er í næstneðsta sæti dönsku deildarinnar.

Kolding var tíu mörkum yfir í leikhléi, 18-8, en liðið náði mest 13 marka forystu í seinni hálfleik.

Magnus Landin var markahæstur í liði Kolding með átta mörk.

Aron og félagar eru með sex stiga forystu á Álaborg á toppi deildarinnar, en bæði lið hafa leikið 16 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×