Menning

Kjarval, Egill Helga, Ringó, Van Gough og allir þeir

Jakob Bjarnar skrifar
Listamaðurinn reynir að útskýra verk sín fyrir áhugasömum gestum opnunarinnar.
Listamaðurinn reynir að útskýra verk sín fyrir áhugasömum gestum opnunarinnar. visir/jbg
Jón Óskar er einhver gæjalegasti myndlistarmaður Íslands og þó víðar væri leitað. Hann opnaði einkasýningu í Tveimur Hröfnum síðdegis í dag. Listhúsið er staðsett í hjarta Þingholtanna. Troðfullt hús var og mikil stemmning. Tíðindamaður Vísis var á staðnum, að sjálfsögðu enda voru þarna allir þeir sem eru eitthvað í listageiranum. Og fleiri til. 

Sýningin heitir Beaucoups of Blues og listamaðurinn útskýrði fyrir blaðamanni Vísis að hann væri undir miklum áhrifum frá ýmsum listamönnum úr ýmsum áttum og verkin endurspegla það; blóm frá Kjarval dúkka upp í mynd af hundi hans, Jón Óskar vottar Van Gough virðingu sína í einu verkanna og Egill Helgason kemur óvænt við sögu í einu verkinu sem heitir The Waste Land í þýðingu Egils Helgasonar 15 ára. 

„Ég gleymi þessu aldrei, en Egill sagði mér frá þessu fyrir um tuttugu árum. Að hann hafi þýtt þetta ljóð 15 ára gamall. Þetta er eitthvað svo fallegt. Þegar ég var 15 ára þá var ég í borðtennis eða gera eitthvað slíkt.“

Beaucoups of blues er svo lag sem Ringó hinn eini sanni söng við texta Buzz Rabin, sem er í miklu eftirlæti hjá Jóni Óskari. Og ekki ómerkari listakona en ljóðskáldið Linda Vilhjálmsdóttir samdi ljóð til sérstaklega til Jóns Óskars, sem finna má í sýningarskrá:

Íslandsblá mynd

af mér í fjörunni heima

að horfa á Jón Óskar mála

portrett af Trenet að syngja

La Mer

Nánar verður fjallað um sýninguna í Fréttablaðinu og þá Vísi, en hér eru fáeinar ljósmyndir frá sýningunni.

Ragnheiður Jónsdóttir, móðir Jóns Óskars, er ein virtasta myndlistarkona landsins og hún er þarna með sonum sínum Hafsteini, Þorvari, Jóni Óskari og Hringi en á myndina vantar þann 5. -- Tind.visir/jbg
Rithöfundurinn Páll Baldvin saumar að myndlistarmönnunum Áslaugu Thorlacius og Finni Arnari.visir/jbg
Fátt fer fram hjá vökulu auga einhvers frægasta ljósmyndara landsins. Björn Blöndal var að sjálfsögðu mættur til að negla viðstadda niður á filmu.visir/jbg
Gítarsnillingurinn Guðlaugur Kristinn Óttarsson, sem Megas kallaði 3. eyrað, lét sig ekki vanta og tjáði blaðamanni Vísis að Jón Óskar væri einn af sínum uppáhalds myndlistarmönnum.visir/jbg
Listelskir vinir. Arnar Steinn Valdimarsson athafnamaður, Jón Mýrdal vert og Egill Örn Jóhannsson útgefandi reyna að sækja alla listviðburði sem þeir komast yfir að sjá.visir/jbg
Annar eigandi Tveggja Hrafna, Ágúst Skúlason, var ánægður með sýninguna. Hinn eigandinn, Halla Jóhanna Magnúsdóttir, festist ekki á mynd; hún var í önnum við að hella kampavíni í glös glaðra gesta.visir/jbg
Kristbergur Pétursson myndlistarmaður sækir vel flestar myndlistarsýningar sem opnaðar eru, enda lítur hann svo á að mikilvægt sé fyrir sig sem listamann að fylgjast með helstu stefnum og straumum.visir/jbg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×