Golf

Kisner í forystu fyrir lokahringinn á HSBC Meistaramótinu

Dustin Johnson á þriðja hring.
Dustin Johnson á þriðja hring. Getty
Kevin Kisner leiðir enn á HSBC Meistaramótinu sem fram fer í Kína en fyrir lokahringinn er hann á 16 höggum undir pari.

Kisner má þó búast við harðri samkeppni á lokahringnum því mörg stór nöfn eru handan hornsins.

Má þar nefna meðal annars Dustin Johnson sem er í öðru sæti á 15 höggum undir pari ásamt Russen Knox og heimamanninum Haotong Li en frammistaða þess síðarnefnda hefur vakið mikla athygli.

Þá eru bandarísku ungstirnin Jordan Spieth og Patrick Reed aðeins þremur höggum á eftir efsta manni á 13 höggum undir pari en Rory McIlroy er líklega aðeins of aftarlega til þess að eiga séns á sigrinum, á átta höggum undir pari.

Lokahringurinn verður spilaður í nótt og hefst beint útsending á Golfstöðinni klukkan 03:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×