Erlent

Keyrði inn í hóp aldraðra dansara

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Eldri kona keyrði inn í hóp aldraðra dansara í Cleveland í gær. Auk konunnar eru átta slasaðir og þar af tveir alvarlega. Hún mun hafa ruglast á bremsunni og bensíngjöfinni á bíl sínum, en hún er 74 ára gömul.

Lögreglan í Cleveland segir að hún gæti verið kærð fyrir atvikið og verði jafnvel sótt til saka fyrir morð. Allir sem slösuðust eru 60 til 80 ára gamlir.

Verið var að halda tónleika fyrir eldra fólk þar sem búið var að koma fyrir dansgólfi undir berum himni. Konan segir að hún hafi verið að fara af tónleikunum og var að drífa sig þar sem annar ökumaður ætlaði að taka bílastæði hennar.

Hún bakkaði úr stæðinu og ruglaðist á bensíngjöfinni og bremsunni og bakkaði á mikilli ferð inn á dansgólfið þar sem um hundrað manns voru að dansa. Eftir það keyrði konan á símastaur og annan bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×