Erlent

Kastaðist úr bílnum í árekstri og gekk í burtu – Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Edward Wallace, sem er 26 ára gamall, slapp með einungis smávægileg meiðsl
Edward Wallace, sem er 26 ára gamall, slapp með einungis smávægileg meiðsl
Myndband náðist á mælaborðsvél lögreglubíls af ökumann bíls kastast úr honum eftir að hann missti stjórn á bílnum í hálku. Maðurinn stóð þó upp, greinilega vankaður og gekk að bíl sínum. Lögreglan birti myndbandið til að minna fólk á að vera í öryggisbeltum.

Edward Wallace, sem er 26 ára gamall, slapp með einungis smávægileg meiðsl. Héraðsmiðlar segja frá því að rannsókn hafi leitt í ljós að Wallace hafi keyrt of hratt miðað við aðstæður. Hann missti stjórn á bílnum, lenti aftan á öðrum bíl og á steypt vegrið. Þá snerist bíllinn yfir fjórar akreinar og lenti á vegriði hinu megin, eftir að Wallace kastaðist út um gluggann og á hraðbrautina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×