Handbolti

Kári: Ég verð að grípa boltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kári í kröppum dansi gegn Slóvenum.
Kári í kröppum dansi gegn Slóvenum. vísir/afp
Kári Kristján Kristjánsson hefur ekki fundið fjölina sína á HM og er ekki enn kominn á blað. Hann er eðlilega ekki nógu sáttur við það.

„Það er ekkert leyndarmál að liðin standa svolítið flöt á okkur en ég í leiknum gegn Túnis átti að grípa boltann í tvö eða þrjú skipti. Ég bara verð að gera það. Þá er ég kominn í sénsinn,“ segir Kári en Arnar Freyr Arnarsson er búinn að skora sex mörk af línunni.

Strákarnir funduðu í morgun og eru duglegir að sjá ljósu punktana í leik liðsins.

„Við erum að fjölga hraðaupphlaupum og stoppa fleiri sóknir. Svo koma tæknifeilarnir og vega upp á móti. Við erum að halda fínum standard í vörninni en eigum í vandræðum í uppstilltri sókn.“

Kári hrósaði síðan ungu mönnunum sem hefðu komið sterkir inn og fallið vel í hópinn.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Ásgeir Örn: Ég þarf að rífa mig upp

"Það eru blendnar tilfinningar eftir helgina,“ segir Ásgeir Örn Hallgrímsson en íslenska liðið fékk eitt stig út úr tveimur hörkuleikjum gegn Slóveníu og Túnis.

Drengjakórinn hans Geirs er að finna taktinn

Strákarnir okkar spiluðu tvo háspennuleiki um helgina. Miðað við færin sem gáfust í leikjunum tveimur er svekkjandi að uppskeran hafi aðeins verið eitt stig. Þetta stig gæti þó orðið dýrmætt og strákarnir eiga enn möguleika á því að komast í sextán liða úrslit. Ísland fær núna eins dags hvíld áður en að leiknum gegn Angóla kemur.

Tek menn ekki af velli eftir fyrstu mistök

Landsliðsþjálfarinn Geir Sveinsson var mjög svekktur yfir að hafa aðeins fengið eitt stig út úr leiknum gegn Túnis í gær og einnig yfir að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum gegn Slóveníu. Þetta var háspennuhelgi hjá strákunum okkar sem geta enn komist áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×