Lífið

Júlíspá Siggu Kling - Krabbi: Þú getur allt

Sigga Kling skrifar
Elsku krabbinn minn. Ég get alveg sagt það hundrað prósent að þetta er þitt sumar. Ég er hins vegar ekki að segja að það verði alltaf bara hlátur. Þú hefur verið að fara í gegnum mjög mikla hluti en þú ert að leysa mikinn vanda á leiðinni. Þú ert ánægður þegar hlutirnir ganga upp, þó svo að allt gangi ekki alveg hundrað prósent upp.

Þetta verður eftirminnilegt sumar sem sýnir þér að þú getur allt. Ekki vera leiður yfir annarra manna röfli og einhverjum sem er að stinga þig. Gerðu bara þitt besta til að láta þér líða vel, því þú ert á leiðinni upp stigann. Það vantar jafnvel nokkrar tröppur í þennan stiga en þú ert svo hugrakkur núna að þú stekkur upp stigann og hreinsar burt svo mikla angist. Það er hláturinn sem á eftir að gefa þér kraftinn.

Þú ert að fara yfir í þinn afmælistíma og þegar við erum á þeim tímamótum þá gerast ótrúlega merkilegir hlutir sem þú þarft að taka eftir. Mér finnst það svo gott hjá þér að einblína ekki alltaf á vandamálin, heldur á lausnirnar. Það er svo líkt þér. Það er að koma svo mikil breyting á orku þinni. Þú átt eftir að láta aðra sjá að þú ert sterkur við stjórn á þínu lífi. Vertu sú breyting sem þú vilt sjá í heiminum sagði Gandhi og ég sé að það er akkúrat það sem er að gerast hjá þér. Það er viss viðkvæmni í ástamálum, en þú þarft bara að fara varlega. Það eru skilaboðin.

Mottó: Ekki leita að hamingjunni, þá er ég ekki heima þegar hún bankar.



Frægir krabbbar: Bryndís Schram fyrirmyndin mín, Sigga Lorange ostabúðarskvísa, Auddi Blö sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason.


Tengdar fréttir

Júlíspá Siggu Kling - Ljón: Margt á döfinni hjá þér

Elsku einstaka ljón. Það væri líklega ekkert að gerast ef þú dveldir ekki á móður jörð. Að sjálfsögðu eru tilfinningarnar búnar að vera þandar eins og flottasta fiðlan í sinfóníunni. Þú hefur verið lítið í þér en einnig stórhuga og haft tröllatrú á öllu.

Júlíspá Siggu Kling - Fiskur: Ekki láta streituna yfirbuga þig

Elsku meðvirki fiskur. Ég hef stúderað þig lengi og meðvirkasta fólk í heimi er í þínu merki. Þú ert alltof góður, gefur alltof mikið og svo getur þú orðið innanpirraður. Það er allt í lagi að láta fjúka í sig, vera leiður og fara stundum í fýlu. Þú getur ekki alltaf verið uppistandarinn í partýinu.

Júlíspá Siggu Kling - Tvíburi: Slepptu örygginu um stund

Elsku fallegi tvíburi. Það virðist margt hafa verið að gerast hjá þér. Þú vilt breytingar í líf þitt og það eru mörg tákn búin að vera uppi síðustu tvo mánuði sem sýna þér að það gætu mjög góðir hlutir verið á leið inn í líf þitt.

Júlíspá Siggu Kling - Vog: Með friðinn að leiðarljósi

Varkára en samt öfluga vogin mín. Þú skalt vera þakklát fyrir alla þá heppni sem er að koma til þín og leysir upp leiðindi, ef þér finnst þau hafa verið hjá þér. Þú munt hægt en örugglega sjá að þú ert að gera rétt. Þú átt eftir að gera mjög gott samkomulag við einhvern náinn þér og þér á eftir að líða miklu betur með það.

Júlíspá Siggu Kling - Bogmaður: Nýttu þér heppnina þína

Besti, besti bogmaður. Þú hefur svo sterkan kjarna og þú veist alltaf hvað þú ætlar að gera. Þú þarft að gera allt svo vel að maður öfundar þig stundum. Happdrætti Háskóla Íslands sagði að bogmaðurinn og vogin væru heppnustu merkin, miðað við þá sem hafa fengið þar vinninga. Þessu trúi ég. Þú átt að nýta þér að það er yfir þér sérstök heppni.

Júlíspá Siggu Kling - Sporðdreki: Vanilla gerir þér gott

Elsku fagri sporðdrekinn minn. Þú ert gæddur svo góðri eftirtekt að það virðist ekkert fram hjá þér fara. Þú hefur svo mikinn áhuga á fólki og það er eins og þú vitir hvað er að fara að gerast hjá sumum. Þú þarft að efla þennan kraft hjá þér og muna að fyrsta hugsunin er sú rétta.

Júlíspá Siggu Kling - Meyjan: Tímabil sameiningar

Elsku þrautgóða meyjan mín. Þetta er tímabil sameiningar. Þú munt ákveða að gifta þig eða ert jafnvel nýbúin að því. Það byrja ný sambönd hjá mörgum meyjunum og þú ert sko tilbúin að ganga inn í ljósið, en þú þarft bara að draga frá gardínurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×