Golf

Jordan Spieth enn í forystu á Isleworth

Jordan Spieth á öðrum hring.
Jordan Spieth á öðrum hring. AP
Jordan Spieth leiðir eftir tvo hringi á Hero World Challenge sem fram fer á Isleworth vellinum í Flórída en hann er á 11 höggum undir pari.

Bandaríkjamaðurinn ungi hefur leikið frábært golf hingað til en á þó eftir að klára lokaholuna á öðrum hring því leik var frestað um stund vegna veðurs.

Henrik Stenson kemur tveimur höggum á eftir Spieth á níu höggum undir pari en Justin Rose og Patrick Reed deila þriðja sætinu á átta undir pari.

Aðeins 18 bestu kylfingar heims fá þátttökurétt á Hero World Challenge sem er styrktarmót fyrir góðgerðasamtök Tiger Woods.

Woods lék annan hring á 70 höggum eða tveimur undir pari en hann er enn í síðasta sæti mótsins eftir að hafa leikið á 77 höggum í gær. Það sáust ýmis batamerki á Woods á öðrum hring sem hefði hæglega getað verið betri ef ekki hefði verið fyrir tvöfaldan skolla á lokaholunni.

Stutta spilið kostaði hann þó aftur en þessi fyrrum besti kylfingur heims til margra ára virðist þó vera á batavegi eftir erfið bakmeiðsli.

Golfstöðin sýnir frá mótinu og hefst útsending frá þriðja hring í dag klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×