Golf

Jordan Spieth: Svona 30 mínútur upplifi ég vonandi aldrei aftur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylfuberinn Michael Greller reynir hér að hughreysta Jordan Spieth.
Kylfuberinn Michael Greller reynir hér að hughreysta Jordan Spieth. Vísir/Getty
Jordan Spieth var í góðum málum og á góðri leið með að tryggja sér sigur á Mastersmótinu annað árið í röð þegar allt breyttist á nokkrum hryllilegum mínútum.

Klukkan rétt rúmlega níu í gærkvöldi var Jordan Spieth sjö höggum undir pari og með fimm högga forskot á Danny Willett. Aðeins 43 mínútum síðar var hann kominn þremur höggum á eftir Willett og dottinn nkður í fjórða sætið.

Fyrst komu tveir skollar í röð en svo kom holan þar sem hann kastaði hreinlega frá sér sigrinum. Tólfta holan varð algjör matraðarhola fyrir hinn 22 ára gamla Jordan Spieth sem lék þessa par þrjú holu á sjö höggum.

„Þetta var bara skortur á aga hjá mér eftir þessa tvo skolla í röð. Ég var að láta þá trufla mig í stað þess að átta mig á því að ég var enn með nokkurra högga forskot á Mastersmótinu," sagði Jordan Spieth.

Spieth setti boltann tvisvar í vatnið við flötina og golfheimurinn tók andköf. Sjö högg og forystan var farin út í buskann.

„Það er enginn vafi í mínum huga um að ég get klárað risamót. Þetta voru bara mjög erfiðar 30 mínútur sem ég upplifi vonandi aldrei aftur," sagði Spieth.

Jordan Spieth var einnig í furðulegri stöðu því eftir allt klúðrið var það hann sem þurfti að klæða Danny Willett í græna jakkann sem fráfarandi meistari. Það voru örugglega einnig erfiðar mínútur fyrir Spieth enda svekkelsið mikið á þeirri stundu eftir allt klúðrið á síðustu níu holunum.

Jordan Spieth er hér búinn að klæða Danny Willett í græna jakkann.Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Jordan Spieth leiðir á Masters fyrir lokadaginn

Jordan Spieth er í efsta sæti á Masters fyrir lokahringinn en hann lék ekkert sérstaklega vel í dag. Spieth hefur leikið fyrstu þrjá hringina á - 3 og leiðir mótið með einu höggi.

Spieth áfram með forystu á Masters

Öðrum deginum á Masters-mótinu í golfi er lokið. Mótið er haldið í Augusta í Georgíu en þetta er í 80. sinn sem það fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×