Innlent

Jónína segir Ögmund ekki hafa tíma fyrir Gunnar

Jónína og Gunnar. "Ég horfi á manninn minn örmagna,“ segir Jónína.
Jónína og Gunnar. "Ég horfi á manninn minn örmagna,“ segir Jónína. Mynd/Rósa
Jónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars Þorsteinssonar fyrrverandi forstöðumanns í Krossinum, segir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hafi ekki tíma fyrir fund með Gunnari. Jónína biður Guð um að gefa Gunnari styrk.

Líkt og Vísir greindi frá um miðja síðustu viku þá hefur kynferðisbrotadeild lögreglunnar lokið við að taka skýrslur af sjö konum sem saka Gunnar um kynferðisbrot. Málinu hefur verið vísað til ákæruvaldsins. Lögreglan tekur ekki afstöðu til þess hvort brot séu fyrnd, en meint brot Gunnars eru allt að 20 ára gömul. Ákæruvaldið metur slíkt og ákveður í framhaldinu hvort gefin verður út ákæra. Gunnar hefur frá upphafi neitað sök.

Jónína segir á Facebook-síðu sinni að Ögmundur hafi annað að gera en að svara beiðni Gunnars um fund. „Ég horfi á manninn minn örmagna af því að bíða eftir einhverju sem enginn skilur. Ég spyr mig aftur og aftur er ekki stundum bara betra að liggja dauður í gröf sinni en að sitja undir fjölmiðlaárásum og hatursáróðri alla daga í fjáröflunarskini. Ég skil að hann sé örmagna og bið Guð að gefa honum styrk til þess að lifa einn dag í einu."


Tengdar fréttir

Lögregla rannsakar mál Gunnars

Konurnar átta sem ásaka Gunnar Þorsteinsson, forstöðumann Krossins, um kynferðislega áreitni hafa nú gefið sig fram til lögreglu. Skýrslutökum er að ljúka og mun Gunnar væntanlega verða kallaður í skýrslutöku í kjölfarið.

Gunnar í Krossinum verður yfirheyrður

Mál kvennanna sjö sem saka Gunnar Þorsteinsson, forstöðumann Krossins, um kynferðisbrot hefur nú verið lagt fram sem lögformleg kæra. Skýrslutökum hjá lögreglu er nær lokið, en búið er að tala við fimm konur. Gunnar verður kallaður í skýrslutöku í kjölfarið, en hann neitar öllum sökum.

Gunnar bjartsýnn á niðurstöðuna

Skýrslutökum yfir Gunnari Þorsteinssyni í Krossinum lauk um ellefuleytið í morgun. Hann hafði mætt á lögreglustöðina á Hverfisgötu til að gefa skýrslu vegna ásakana nokkurra kvenna úr Krossinum um kynferðislega áreitni.

Gunnar hjá lögreglu vegna ásakana um kynferðisbrot

Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður í Krossinum, mætti í morgun í skýrslutökur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna ásakana um kynferðisbrot. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum hafa nokkrir safnaðarmeðlimir úr Krossinum sakað Gunnar um kynferðislega áreitni.

Búið að taka skýrslur af sjö konum

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar hefur lokið við að taka skýrslur af sjö konum sem saka Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumann Krossins, um kynferðisbrot. Málinu hefur verið vísað til ákæruvaldsins. Gunnar hefur frá upphafi neitað sök. Lögreglan tekur ekki afstöðu til þess hvort brot séu fyrnd, en meint brot Gunnars eru allt að tuttugu ára gömul. Ákæruvaldið metur slíkt og ákveður í framhaldinu hvort gefin verður út ákæra.

Gunnar í Krossinum fagnar aðkomu lögreglu

Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, segist fagna því að mál hans sé komið í lögformlegan farveg. Gunnar sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar umfjöllunar um að konurnar sex sem saka hann um kynferðislega áreitni hafi tilkynnt málin til lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×