Innlent

Jón Gnarr leikstýrir Áramótaskaupinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson hafa komið víða við hvort sem er í útvarpi eða sjónvarpi undanfarna áratugi.
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson hafa komið víða við hvort sem er í útvarpi eða sjónvarpi undanfarna áratugi.
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson munu leiða saman hesta sína í Áramótaskaupi Ríkissjónvarpsins sem sýnt verður á gamlárskvöld. Þetta kom fram í skemmtiþætti á RÚV í kvöld. Ásamt þeim Jóni og Sigurjóni verða Þorsteinn Guðmundsson, Helga Braga Jónsdóttir og Katla Margrét í teyminu.

Sigurjón og Þorsteinn virtust temmilega spenntir fyrir verkefninu en Þorsteinn grínaðist þó með það að hann hefði sjálfur engan áhuga á að leika í skaupinu. Best væri ef Laddi gæti farið í sem flest hlutverk.

Sigurjón var ekki tilbúinn að samþykkja fullyrðinguna um að um Fóstbræðraskaup væri að ræða þótt nokkrir félagar úr grínþáttunum á Stöð 2 væru að leiða saman hesta sína á nýjan leik.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×