Körfubolti

Jón Arnór: Ætlum að spila með öllu okkar hjarta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson á æfingu í gær.
Jón Arnór Stefánsson á æfingu í gær. Vísir/Valli
Jón Arnór Stefánsson og félagar í íslenska landsliðinu í körfubolta spila sögulegan leik í Berlín í dag eða fyrsta leik íslenska körfuboltalandsliðsins í úrslitakeppni EM. Eurbasket hefst í dag með leik Þýskalands og Íslands.

„Við þurfum að eiga mjög leik og koma þeim svolítið á óvart. Það gæti orðið þannig að ef við erum að standa í þeim og spila vel þá gætum við kannski komið einhverri pressu yfir á þá. Þeir eru að spila á heimavelli og allt það,“ segir Jón Arnór en hann gerir sér vel grein fyrir því að íslenska liðið er að fara spila við mjög sterka mótherja.

„Auðvitað þurfum við stórkostlegan leik í bæði vörn og sókn til að eiga möguleika. Það er samt möguleiki og við höfum fulla trú á því. Við höfum trú á okkur sjálfum og því sem við erum að gera. Trúin verður að vera til staðar og að við sjáum það fyrir okkur að þetta geti gerst. Við erum með taktíkst plan sem við höldum að geti virkað. Ef við framkvæmum það rétt þá eigum við möguleika á því að vinna þennan leik. Ég trúi því og strákarnir líka,“ segir Jón Arnór.

Það mun vera erfitt fyrir strákana að stilla spennustigið og Jón Arnór er engin undantekning frá því þrátt fyrir mikla reynslu.

„Það verður örugglega vandræði að sofna í kvöld (í gærkvöldi). Við æfðum í stóra salnum í gærkvöldi og þá fékk maður þvílíka tilfinningu í skrokkinn. Það verður eitthvað svipað upp á tengingum á síðustu æfingunni en svo bara verður við að reyna einhvern veginn að stjórna því ef að það er hægt að stjórna þessu spennustigi eitthvað,“ sagði Jón Arnór í gær.

„Við þurfum að vera léttir og kátir líka og hafa gaman af þessu. Við megum ekki gleyma okkur í einhverju brjáluðu stressi. Okkar leikstíll er þannig að við þurfum að hafa gaman að því sem við erum að gera og spila með öllu okkar hjarta og leggja allt í sölurnar,“ sagði Jón Arnór.

Leikur Íslands og Þýskalands hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma og hægt verður að fylgjast með gangi mála inn á Vísi.


Tengdar fréttir

Hörður: Allt mér að þakka að Haukur er hér í dag

Fréttamaður Vísis í Berlín hitti á landsliðsmennina Hauk Helga og Hörð Axel fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi á morgun. Strákarnir voru léttir í lund og rifjuðu meðal annars upp þegar Hörður var þjálfari Hauks í Fjölni.

Hlynur: Þeir labba ekki á vatni frekar en við hinir

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðið mun leiða sitt lið inn í sögulegan leik á morgun þegar Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta leik liðsins á Eurobasket.

Pavel: Við unnum ekkert lottó til að vera hérna

Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi íslenska körfuboltalandsliðsins, er klár í slaginn á Evrópumótinu og segir að íslenska liðið eigi fyllilega skilið að keppa við þá bestu í ár.

Ljóðskáldið Axel Kárason

Ísland hefur leik á EM í körfubolta á morgun þegar liðið mætir Þýskalandi í Mercedes Benz-höllinni í Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×