Körfubolti

Jón Arnór: Það getur enginn tekið þetta frá mér

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Jón Arnór var frábær í kvöld.
Jón Arnór var frábær í kvöld. vísir/daníel
Jón Arnór Stefánsson kom aftur inn í íslenska körfuboltalandsliðið í kvöld og skoraði 23 stig í 71-69 sigri á Bretum í London. Íslenska liðið átti magnaða endurkomu í seinni hálfleiknum eftir að hafa verið tíu stigum undir í hálfleik.

 

„Það hefur alltaf verið stígandi hjá okkur ár eftir ár og liðið er alltaf að verða betra og betra. Allir í kringum þetta eru að reyna að gera sitt besta. ¬Það væri ólýsanlegt að fara í Evrópukeppnina," sagði Jón Arnór sigurreifur eftir leikinn en aðeins ótrúleg ólukka kemur í veg fyrir að Ísland verði með á EM næsta sumar.

 

„Það var bara geðveikt að berjast í gegnum þetta mótlæti," segir Jón Arnór um endurkomuna í seinni hálfleiknum. "Það sem fór í gang var að við þéttum vörnina, fráköstum alveg eins og ljón og þá kom sóknin í kjölfarið. Okkur vantaði það í fyrri hálfleik. Hössi var frábær og það stigu flestir upp eins og þeir hafa verið að gera í síðustu leikjum," sagði Jón Arnór.

 

„Við erum búnir að vera að standa í þessu í þessi þrjú ár og höfum lent í ýmsu, stórum töpum og þvílíkum spennileikjum sem við höfum tapað í lokin. Núna tökum við Breta heima og úti. Þetta er gott lið og við erum að mæta þeim á útivelli í London með allt undir. Við sýndum það að við vorum klárir í þetta," sagði Jón Arnór og hann sér ekki eftir því að koma til baka

 

„Djöfull er ég sáttur. Það eru margir kannski ekki alveg sáttir við mig og það var smá neikvæðni í kringum það þegar ég dró mig út. Það er ég sem er búinn að vera standa í þessu öll þessi ár og það er ég sem er búinn að leggja mig fram hvert einasta sumar að spila með þessu landsliði. Ég er stoltur af því og því að geta tekið þátt í þessu  og eiga möguleika á því að komast á Evrópumót. Það getur enginn tekið það frá mér," sagði Jón Arnór að lokum.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×