Lífið

Jeppaferðir hafa aldrei verið vinsælli

Jeppaferðir hafa færst mjög í aukana á undanförnum árum. Sífellt fleiri fyrirtæki skjóta upp kollinum sem bjóða upp á ferðir um landið á fjallajeppum, en það eru helst útlendingar sem sækja ferðirnar.

„Þegar við vorum að byrja í þessum bransa fyrir sautján árum voru kannski tvö eða þrjú fyrirtæki í þessu en nú eru þau orðin svo mörg að ég hef enga tölu á því," segir Kristján Kristjánsson hjá Mountain Taxi um jeppaferðir á Íslandi.

Björn Hróarsson hjá Extreme Iceland tekur í sama streng og Kristján og segir aukninguna hafa verið mikla á síðustu árum, en hann er búinn að vera viðloðandi þennan bransa í rúm 30 ár.

„Aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum, bara álíka og fjölgun ferðamanna til landsins og jafnvel meira," segir hann. Svo virðist vera sem erlendir ferðamenn hafi töluvert meiri áhuga á jeppaferðum en Íslendingar og eru þeir Björn og Kristján sammála um að það séu nær eingöngu útlendingar sem sæki ferðirnar. Kristján segir þó alltaf eitthvað um það að Íslendingar óski eftir ferðum líka. „Það er til dæmis mikið um að starfsmannafélög fari í ferðir með okkur, eða fyrirtæki sem eru með erlenda gesti og þá fylgja oft Íslendingar með," segir hann.

Þó jeppaferðir séu farnar allt árið um kring er þó alltaf meira um að vera yfir sumartímann. „Það var ekki mikið að gera hjá okkur yfir vetrartímann fyrstu tvö eða þrjú árin en fljótlega eftir það fór að vera straumur í ferðir allt árið um kring. Það fer þó eftir árstíðum hvaða ferðir eru vinsælastar," segir Kristján.

Jeppaferðir blandast oft saman við annars konar ferðir og segir Kristján vera hægt að flétta flesta hugsanlega afþreyingu inn í ferðirnar. Hann segir þá hjá Mountain Taxi fara mest í ferðir í Þórsmörk, í Landmannalaugar, á Langjökul og á Fjallabakssvæðið auk þess sem fólk kjósi oft að fara í lengri ferðir sem taki þá allt upp í tvær vikur.

Hann segir ferðir á Gullfoss og Geysi líka alltaf vera mjög vinsælar. Björn nefnir einnig Þórsmörk, Landmannalaugar og Langjökul sem vinsælustu ferðirnar hjá Extreme Iceland og bætir við ferðum á Jökulsárlón og Hveravelli. Einnig segir hann þá bjóða upp á hringferðir sem séu mjög vinsælar. „Við erum yfirleitt alltaf með að minnsta kosti eina hringferð í gangi. Í augnablikinu erum við með þrjár," segir hann.

tinnaros@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×