Erlent

Jemen sagt að hruni komið

guðsteinn bjarnason skrifar
Í höfuðborginni Sana pakkar fólk saman og fer með búslóð sína burt.
Í höfuðborginni Sana pakkar fólk saman og fer með búslóð sína burt. nordicphotos/AFP
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir ástandið í Jemen hafa hríðversnað undanfarna mánuði, eða allt frá því Abd Rammo Mansúr Hadi forseti hraktist frá höfuðborginni 22. janúar síðastliðinn.

Hann skorar á alla aðila átakanna að sjá til þess að almennir borgarar njóti verndar og fordæmir sérstaklega árásir á sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir.

„Heimili, sjúkrahús, menntastofnanir og innviðir hafa verið eyðilögð á ýmsum stöðum, og gert lífið enn erfiðara fyrir fólk í þessu stríðshrjáða landi,“ segir Zeid Ra'ad Al Hussein, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær.

„Ástandið í Jemen er sérlega skelfilegt orðið, þar sem tugir almennra borgara hafa verið drepnir á síðustu fjórum dögum. Landið virðist á barmi algers hruns,“ segir hann.

Á mánudaginn voru gerðar loftárásir á Al Mazrak-flóttamannabúðirnar í Harad. Þar létust að minnsta kosti 19 manns, en líklega þó fleiri.

Í lok síðustu viku hófu Sádi-Arabar, með stuðningi nokkurra annarra ríkja, loftárásir á uppreisnarmenn húta, sem í september síðastliðnum náðu á sitt vald höfuðborginni Sana. Forsetinn Hadi flúði þá höfuðborgina.

Stjórnarher landsins er klofinn í afstöðu til uppreisnarinnar. Sumir hermenn styðja húta en aðrir styðja forsetann. Átökin eru samt enn flóknari því bæði uppreisnarmennirnir og stuðningsmenn forsetans hafa átt í átökum við liðsmenn Al Kaída, sem hafa staðið fyrir fjölda árása á fólk í landinu. Þá hafa vígasveitir Íslamska ríkisins, sem hrellt hafa íbúa í Sýrlandi og Írak, einnig hreiðrað um sig í Jemen í vetur og sprengdu tvær moskur í Sana fyrr í þessum mánuði, með þeim afleiðingum að nærri 140 manns létu lífið og hundruð manna særðust.

Óttast er að borgarastyrjöldin styrki stöðu samtaka á borð við Al Kaída og Íslamska ríkið. Fréttaskýrendur segja átökin í Jemen auk þess hæglega geta snúist upp í stríð milli Sádi-Arabíu og Írans, þar sem Íranar styðja húta en Sádi-Arabar stjórnina.

Í suðurhluta landsins eru síðan enn önnur samtök, Al Hirak, sem berjast fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis í Suður-Jemen.

Suður-Jemen var sjálfstætt ríki með kommúnistastjórn á árunum 1970 til 1990, og naut stuðnings Sovétríkjanna meðan þau voru til. Eftir það sameinuðust Suður- og Norður-Jemen í eitt ríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×