Lífið

Jarðarförin fer fram annan í páskum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Jarðarför fyrirsætunnar og sjónvarpskonunnar Peaches Geldof fer fram í kyrrþey annan í páskum í kirkjunni St. Mary Magdalene. Jarðarför móður Peaches, Paulu Yates, fór einnig fram í kirkjunni árið 2000 en hún lést úr ofneyslu fíkniefna.

Peaches fannst látin á heimili sínu í Kent þann 7. apríl, aðeins 25 ára að aldri. Dánarorsökin er enn ókunn.

Peaches var dóttir tónlistarmannsins Bobs Geldof og Paulu. Hún skilur eftir sig eiginmanninn Thomas Cohen og tvo unga syni, Astala og Phaedra.


Tengdar fréttir

Peaches Geldof látin

Dóttir tónlistarmannsins Bob Geldof og Paula Yates látin, 25 ára að aldri.

Seinustu myndir Peaches

Seinasta myndin sem Peaches Geldof deildi á samfélagsmiðlunum Twitter var mynd af henni og móður hennar.

Öskunni dreift í Kent

Ösku Peaches Geldof verður dreift á sama stað og ösku móður hennar var dreift árið 2000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×