Körfubolti

Jakob og félagar upp í 3. sætið eftir sigur á meisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob skilaði sínu í kvöld.
Jakob skilaði sínu í kvöld. vísir/valli
Jakob Örn Sigurðarsson og félagar í Borås Basket eru komnir upp í 3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir tíu stiga sigur, 86-76, á Södertälje Kings í kvöld.

Jakob, sem er fyrirliði Borås, átti fínan leik í kvöld gegn liðinu sem hefur orðið sænskur meistari undanfarin fjögur ár.

Jakob skoraði 13 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum í kvöld.

Jakob hitti úr fjórum af tíu skotum sínum utan af velli og nýtti bæði vítin sín.

Borås er búið að vinna tvo leiki í röð og þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið er sem áður sagði í 3. sæti deildarinnar með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×