Lífið

Jack Nicholson sýnir Eldfjalli Rúnars áhuga

Jack Nicholson er sannkölluð stórstjarna, hefur hlotið þrenn Óskarsverðlaun og verið heiðraður fyrir leik sinn ótal sinnum. Hann hefur sýnt Eldfjalli eftir Rúnar Rúnarsson áhuga, með möguleika á að endurgera myndina. Bitastætt hlutverk fyrir sjötugan mann, segir leikstjórinn.
NordicPhotos/getty
Jack Nicholson er sannkölluð stórstjarna, hefur hlotið þrenn Óskarsverðlaun og verið heiðraður fyrir leik sinn ótal sinnum. Hann hefur sýnt Eldfjalli eftir Rúnar Rúnarsson áhuga, með möguleika á að endurgera myndina. Bitastætt hlutverk fyrir sjötugan mann, segir leikstjórinn. NordicPhotos/getty
Mikill áhugi er á Eldfjalli, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, eftir velgengni hennar á kvikmyndahátíðum undanfarið. Útsendarar á vegum bandaríska stórleikarans Jack Nicholson hafa óskað eftir því að fá eintak af myndinni í því augnamiði að sýna honum myndina og jafnvel endurgera. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað milli starfsliðs stórstjörnunnar og framleiðslufyrirtækis myndarinnar, ZikZak.

„Þeir er búnir að setja sig í samband og það er eintak á leiðinni. Meira er ekki hægt að segja. En þetta er ekkert fjarstæðukennd hugmynd," segir Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi Eldfjalls í samtali við Fréttablaðið.

Nicholson er í miklu uppáhaldi hjá Þóri, eins og hjá flestum kvikmyndagerðarmönnum, og hann segir nánast bókað að Nicholson muni fá sinn fjórða Óskar ef hann ræðst í endurgerð kvikmyndarinnar. „En þetta er náttúrulega allt á viðræðustigi og yrði bara gaman ef af yrði. Hann er auðvitað bara með lið á sínum snærum sem sér um að finna handa honum sniðug verkefni."

Kvikmyndin Eldfjall hefur verið á mikilli sigurbraut að undanförnu og hreppt aðalverðlaunin á hverri hátíðinni á fætur annarri. Nú síðast í Denver þar sem hún hlaut hin eftirsóknarverðu Krzysztof Kieslowski-verðlaun og lagði meðal annars nýjustu kvikmynd George Clooney, The Descendants eftir Alexander Payne. En Clooney hefur verið orðaður við Óskarinn fyrir frammistöðu sína í myndinni.

„Okkur hefur gengið vel í Norður-Ameríku, og hægt og bítandi erum við að komast á landakortið þar," segir Rúnar í samtali við Fréttablaðið og vildi sem minnst tjá sig um málið en staðfesti þó að það væru þreifingar í gangi fyrir vestan, þetta væri bitastætt hlutverk fyrir mann á sjötugsaldri og af þeim væri ekki nóg.

Eldfjall hefur vakið mikla athygli á Rúnari og fjölmargir aðilar hafa sýnt leikstjóranum áhuga. Fram undan er nú kapphlaupið um tilnefningu til Óskarsverðlauna en Eldfjall er framlag Íslands í þá baráttu. „Þetta er dýrt sport og þær eru stjarnfræðilegar upphæðirnar sem mörg af okkar nágrannalöndum eru að eyða í þetta," segir leikstjórinn.

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×