Sport

Íþróttadeild 365 þakkar fyrir frábæra aðsókn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fréttir af karlalandsliði Íslands í handbolta hafa vakið mikla athygli.
Fréttir af karlalandsliði Íslands í handbolta hafa vakið mikla athygli. Vísir/Eva Björk
Rúmlega 194 þúsund notendur lásu íþróttafréttir Vísis í liðinni viku. Aldrei hafa fleiri notendur lesið íþróttafréttir á vefmiðlinum ef litið er til lesturs yfir eina viku eins og vefmælingar Modernus miða við.

Um er að ræða bætingu um tæplega níu prósent en fyrri metvika íþróttadeildar var 179.555 notendur. 194.523 sóttu Vísi heim í leit að íþróttafréttum í liðinni viku.

Íþróttadeildin þakkar öllum lesendum sínum kærlega fyrir komuna í liðinni viku og minnir á beina textalýsingu frá viðureign Danmerkur og Íslands í kvöld klukkan 18. Fram að leik mun stuðningsmaðurinn Júlíus Sigurjónsson, sem staddur er í Katar, sjá um að halda uppi stuðinu á Snapchat aðgangi íþróttadeildar.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×