Golf

Íslendingur vill komast í framkvæmdastjórn evrópska golfsambandsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands.
Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands. Mynd/Golfsamband Íslands
Forseti Golfsambands Íslands ætlar að reyna að komast í áhrifastarf hjá evrópska golfsambandinu en hann er í framboði á ársþingi sambandsins um næstu helgi.

Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér í stjórn evrópska golfsambandsins á ársþinginu sem fer fram í fæðingarbæ golfíþróttarinnar, St. Andrews í Skotlandi.

Verði Haukur Örn kosinn þá verður hann fulltrúi Norðurlandanna og austur Evrópu í framkvæmdastjórninni.

„Undanfarin fjögur ár hef ég setið í mótsstjórn EGA og á þeim tíma hefur Ísland tvívegis verið valið sem keppnisstaður fyrir Evrópumót í golfi. Á næsta ári mun fara fram Evrópumót kvennalandsliða á Urriðavelli og það verður stærsta verkefni okkar til þessa," sagði Haukur Örn í fréttatilkynningu frá Golfsamandi Íslands.

„Það er mikill heiður fyrir mig að vera valinn af hinum Norðurlandaþjóðunum til að vera fulltrúi þeirra í framkvæmdastjórn EGA og heiðurinn yrði enn meiri verði ég kosinn. Það yrði virkilega spennandi en við sjáum til hvernig kosningarnar fara“, sagði Haukur Örn ennfremur.

Þetta yrði söguleg kosning gangi allt upp hjá forseti Golfsambands Íslands. Haukur Örn yrði nefnilega fyrsti Íslendingurinn til að taka sæti í framkvæmdastjórn EGA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×