Erlent

Írakskar öryggissveitir ná Tíkrit úr höndum ISIS

Atli Ísleifsson skrifar
Tíkrít er heimaborg Saddams Hussein, fyrrum einræðisherra landsins, um 160 kílómetrum norður af höfuðborginni Bagdad.
Tíkrít er heimaborg Saddams Hussein, fyrrum einræðisherra landsins, um 160 kílómetrum norður af höfuðborginni Bagdad. Vísir/AFP
Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, segir írakskar öryggissveitir hafa frelsað borgina Tíkrít úr höndum ISIS-liða.

Harðir bardagar hafa staðið um borgina síðustu vikur, en liðsmenn ISIS náðu borginni á sitt vald í júní síðastliðinn.

Bandaríkjaher hefur framkvæmt fjölda loftárása á skotmörk ISIS í kringum borgina síðustu daga til að auðvelda írökskum öryggissveitum inngöngu í borgina.

Tíkrít er heimaborg Saddams Hussein, fyrrum einræðisherra landsins, um 160 kílómetrum norður af höfuðborginni Bagdad.

Al-Abadi fyrirskipaði Íraksher að endurheimta borgina þann 1. mars síðastliðinn og hafa átök um borgina staðið síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×