Innan við helmingur styður veiðar á langreyðum Brjánn Jónasson skrifar 22. apríl 2014 06:30 Hvalur hf. er eina fyrirtækið sem veiðir langreyðar, og komu hvalabátar þess með 134 langreiðar að bryggju á vertíðinni síðasta sumar. Fréttablaðið/Anton
Verulega hefur dregið úr stuðningi við veiðar á langreyðum á síðustu tíu mánuðum, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Um 23,6 prósent landsmanna segist nú mjög eða frekar andvíg veiðunum. Þetta er talsverð aukning frá því síðast þegar afstaða til veiðanna var könnuð, í lok júní í fyrra. Þá sögðust 18,5 prósent mjög eða frekar andvíg veiðum á langreyðum. Samkvæmt könnuninni styður meirihluti landsmanna ekki lengur veiðarnar. Alls eru 45,5 prósent landsmanna mjög eða frekar hlynnt veiðunum. Fyrir tíu mánuðum var rúmur meirihluti fyrir því að veiða langreiðar, en þá sögðust 57,2 prósent mjög eða frekar hlynnt veiðunum í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Tæpur þriðjungur landsmanna, um 30,9 prósent, er hvorki hlynntur né andvígur veiðunum. Það hlutfall hefur hækkað undanfarna mánuði, úr 24,2 prósentum í lok júní í fyrra.Mikill munur er á afstöðu kynjanna til veiða á langreyðum. Alls eru 51,8 prósent karla mjög eða frekar hlynnt veiðunum, en 38,9 prósent kvenna. Um 24,2 prósent karla er andvígur veiðunum en 23 prósent kvenna. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru mun hlynntari veiðum á langreyðum en stuðningsmenn annarra flokka. Um 62,1 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksis eru hlynntir veiðunum, og 56 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Áhuginn á veiðum er minni hjá stuðningsmönnum annarra flokka. Um 32,9 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru hlynntir veiðunum, og 29,9 prósent kjósenda Bjartar framtíðar. Um 23,8 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna eru fylgjandi veiðunum, og 46,2 prósent kjósenda Pírata.Veiddu 134 langreyðar síðasta sumar Veiðitímabilið á langreyðum er ekki hafið, en Hvalur hf. hafði heimild til að veiða 154 dýr í fyrra og áformað er að kvótinn verði sá sami í ár. Í fyrra veiddi fyrirtækið 134 dýr, en ekkert var veitt árin 2011 og 2012. Nýlega fór um 2.000 tonna sending af hvalkjöti frá Hvali hf. áleiðis til Japan. Skipið sigldi suður fyrir Afríku í stað þess að fara í gegnum Súes-skurðinn. Erfitt hefur reynst að koma hvalkjöti sjóleiðina á markað í Japan þar sem verndarsinnar hafa beitt sér gegn veiðunum, sölu á kjötinu og þar með flutningi á því frá Íslandi.Aðferðafræðin Hringt var í 1.332 manns þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 14. og 15. apríl. Svarhlutfallið var 60,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú veiðum á langreyðum? Alls tóku 94,8 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira