Viðskipti innlent

IKEA innkallar ELDSLÅGA gashelluborð til viðgerðar

Birgir Olgeirsson skrifar
Ikea á Garðatorgi.
Ikea á Garðatorgi. Vísir/Ernir
Í varúðarskyni innkallar IKEA til viðgerðar öll ELDSLÅGA gashelluborð sem keypt voru fyrir 1. janúar 2018. Helluborðin hafa eingöngu verið seld í Evrópu. Viðgerð fer fram á heimili eigenda en í tilkynningu frá IKEA kemur fram að þjónustan sé ókeypis.

Í tilkynningunni segir að mannleg mistök hafi orðið til þess að rangur gasloki var settur á hraðhelluna sem þýðir að útstreymi kolsýrings er yfir leyfilegum mörkum Evrópureglugerðar. Rannsókn á gallanum leiddi í ljós afar litla hættu á neikvæðum heilsufarsáhrifum og að ekki er aukin hætta á eldsvoða eða sprengingu. Engar tilkynningar hafa borist IKEA vegna gallans.

Viðskiptavinir sem keyptu ELDSLÅGA gashelluborð fyrir 1. janúar 2018 eru beðnir að hætta notkun á hraðhellunni efst til hægri þar til brennarinn hefur verið lagfærður. Allir hinir brennararnir eru öruggir. Til að leysa úr vandamálinu eru eigendur helluborðanna beðnir að hafa samband við þjónustuver í síma 520 2500 til að bóka tíma fyrir viðgerð. Ekki er þörf á að sýna kassakvittun.

Helluborðin sem um ræðir voru seld í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Tékklandi, Króatíu, Litháen, Serbíu, Rússlandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Póllandi, Spáni, Bretlandi, Írlandi, Ítalíu, Portúgal, Austurríki, Þýskalandi, Belgíu og Frakklandi.

IKEA biðst velvirðingar á hvers kyns vandræðum sem þetta kann að valda. Nánari upplýsingar er að finna á IKEA.is, og í þjónustuveri í síma 520 2500.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×