Innlent

Icesave snýr stjórnlagaþingi

Flest bendir til að nefnd um framhald stjórnarskrárbreytinga leggi til að þeir 25 sem kjörnir voru til setu á stjórnlagaþing verði skipaðir í stjórnlagaráð. Það verði Alþingi ráðgefandi um breytingar á stjórnarskránni. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu hleypti upp áformum nefndarinnar.

Á föstudag var meirihluti nefndarinnar eindregið þeirrar skoðunar að legga bæri til að fram færi uppkosning – að kosið yrði á ný á milli þeirra sem buðu sig fram í kosningunni í nóvember – þótt fulltrúi Vinstri grænna hefði haft fyrirvara á vegna kostnaðar.

Ákvörðun forseta á sunnudag varð til þess að meirihluti nefndarinnar lítur ekki lengur á uppkosningu sem vænlegan kost. Ómögulegt sé að reka tvenns konar kosningabaráttu samtímis, það er að fjalla um kosti og galla Icesave-laganna og framboð til stjórnlagaþings.

Meðal þess fyrsta sem forystumenn ríkisstjórnarinnar sögðu eftir að ákvörðun forseta lá fyrir var að hugsanlega bæri að kjósa til stjórnlagaþings samhliða Icesave.

Sú yfirlýsing kom stjórnlagaþingsnefndinni á óvart og þykja, samkvæmt samtölum Fréttablaðsins við nefndarmenn, óheppileg inngrip í störf hennar. En hvað sem þeim líður virðist meirihluti nefndarinnar þeirrar skoðunar að í ljósi aðstæðna beri að leggja til við þing og ríkisstjórn að skipað verði stjórnlagaráð til að fjalla um breytingar á stjórnarskrá.

Reynt verður að ná sátt um málið á fundi stjórnlagaþingsnefndarinnar klukkan fimm í dag. Ef það tekst ekki verður málið afgreitt í ágreiningi á fimmtudag.

Nefndin er einungis ráðgefandi og það er Alþingis að taka ákvörðun um afdrif málsins. Færi svo að Alþingi ákvæði að kosið skyldi að nýju til stjórnlagaþings stæði eftir að ákveða hvenær. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa sagt borðleggjandi að gera það samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave.

Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að stjórnarliðar telji það nú hæpinn möguleika, ekki síst vegna harðrar andstöðu sjálfstæðismanna við þá hugmynd, sem kom meðal annars skýrt í ljós á Alþingi í gær.

Til að kjósa á ný til stjórnlagaþings þyrfti að breyta lögum um stjórnlagaþing frá í fyrrasumar. Stjórnarliðar óttast að sjálfstæðismenn myndu tefja þá lagabreytingu nógu lengi til að hún tækist ekki í tíma.- bþs, sh



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×