Handbolti

ÍBV valtaði yfir Fylki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Karólína spilar með ÍBV á þessu tímabili. Hún skoraði sjö mörk í dag.
Karólína spilar með ÍBV á þessu tímabili. Hún skoraði sjö mörk í dag. vísir/vilhelm
ÍBV vann auðveldan sigur á Fylki í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag en leikurinn fór 33-18 og fór hann fram í Vestmannaeyjum.

Staðan í hálfleik var 16-6 og var sigur Eyjastúlkna aldrei í hættu.

Karólína Bæhrenz Lárusdóttir skoraði sjö mörk fyrir ÍBV í leiknum og var hún markahæst. ÍBV er með fjögur stig eftir þrjár umferðir en Fylkir er ekki enn komið með stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×