Innlent

Í reglulegu sambandi við Eirík Fannar á meðan hann er í hléi frá afplánun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að lok hlés á afplánun, þegar tímarammi er ekki fyrirfram ákveðinn, sé tilkynnt munnlega. Fangelsismálastofnun sé í reglulegu sambandi við fanga í þeim tilfellum.
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að lok hlés á afplánun, þegar tímarammi er ekki fyrirfram ákveðinn, sé tilkynnt munnlega. Fangelsismálastofnun sé í reglulegu sambandi við fanga í þeim tilfellum. vísir/andri marinó
Að gert sé hlé á afplánun refsinga hjá föngum á Íslandi hefur gerst átján sinnum á þeim 27 árum sem Fangelsismálastofnun hefur verið starfrækt og þrisvar undanfarið ár. Þetta kemur fram í skriflegu svari Páls Winkel fangelsismálastjóra við fyrirspurn Vísis um hlé á afplánun refsinga.

Tilefnið er að Eiríkur Fannar Traustason, sem hlaut í júlí fimm ára dóm fyrir hrottalega nauðgun í Hrísey sumarið 2015, er nú í hléi frá afplánun og hefur verið undanfarnar þrjár vikur. Ekki liggur fyrir hvenær hlénu lýkur en Fangelsismálastofnun er í stöðugu sambandi við Eirík ef marka má svör við fyrirspurn Vísis.

Þannig er að Eiríkur og barnsmóðir hans áttu von á tvíburum og gekk meðgangan ekki eins og best var á kosið. Fæddust þeir níu vikum fyrir tímann og var annar lengi vel í lífshættu. Þeir eru enn á vökudeild Landspítala. Barnsmóðirin, Halla Björg Albertsdóttir, segir í viðtali við DV að Eiríkur hafi lært sína lexíu. Þau sem þekki Eirík viti að atburðurinn, hrottleg nauðgun í Hrísey sumarið 2015, eigi ekki að festa við hann.

Það flækir hins vegar málið að Eiríkur er grunaður um kynferðisbrot gegn stúlku undir lögaldri yfir nokkurn tíma í Hrísey, sömuleiðis í fyrrasumar. Rannsókn lögreglu er lokið og er málið á borði héraðssaksóknara sem mun taka ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út í málinu.

Eiríkur og Halla skruppu til Akureyrar á dögunum.Vísir
Skrapp til Akureyrar

Samkvæmt heimildum Vísis var fjölskyldu stúlkunnar í málinu sem er á borði héraðssaksóknara ekki gert viðvart um að Eiríkur Fannar gengi laus. Í viðtalinu við DV kemur fram að þau Eiríkur og Halla hafa dvalið í Reykjavík undanfarnar vikur en þó farið norður til Akureyrar á dögunum þar sem Halla býr.

Í skriflegu svari Páls við fyrirspurn Vísis kemur fram að heimilt sé setja skilyrði fyrir leyfi að fangi hafi ekki samband við brotaþola meðan á leyfinu stendur.

„Slíkt er metið í hvert sinn og þá er jafnframt reynt að hafa samband við brotaþola til að upplýsa þá um það,“ segir í svarinu.

Eiríkur Fannar hefur verið í leyfi í frá afplánun í um þrjár vikur.vísir/anton brink
Hlé á afplánun allt annað en skammtímaleyfi

Rétt er að árétta að Eiríkur er í hléi á grundvelli 19. grein laga um fullnustu refsingu. Í umfjöllun fjölmiðla hefur verið vísað til 61. greinar en hún á við um skammtímaleyfi til dæmis þegar óskað er eftir því að sækja jarðaför. Sú grein á því ekki við. Skammtímaleyfi eru veitt nokkuð reglulega á meðan hlé á afplánun er mun sjaldan veitt.

Í 19. greininni sem fjallar um hlé á afplánun stendur:

„Afplánun skal vera samfelld. Þó er heimilt að gera hlé á afplánun ef mjög sérstakar ástæður mæla með því. Hlé skal bundið skilyrði um að aðili gerist ekki brotlegur meðan á því stendur. Heimilt er að setja frekari skilyrði fyrir hléi á afplánun.“

Eiríkur Fannar starfaði við veitingasölu í Hrísey sumarið 2015.vísir/friðrik
Hvert mál metið fyrir sig

Það er Fangelsismálastofnuna sem tekur ákvörðun um hvort veita eigi fanga hlé á afplánun og í hve langan tíma. Í svari Páls segir að meta verði hvert mál fyrir sig og þær aðstæður sem séu fyrir hendi og eru grundvöllur hlésins. 

„Þegar ákvörðun um hlé er tekin er fanga tilkynnt það skriflega. Þar kemur fram hvenær hléið er veitt, hvaða skilyrði eru fyrir hléinu og í hve langan tíma það er veitt ef hægt er að taka þá ákvörðun. Er fanga þá gert að mæta aftur til afplánunar á ákveðnum degi. Þó er ekki alltaf hægt að kveða á um lok hlés þegar ákvörðun er tekin, t.d. ef hlé er veitt vegna veikinda þar sem ekki liggur þá fyrir hversu lengi það ástand varir,“ segir í svarinu.

Í tilfelli Eiríks og Höllu var ekkert kveðið á um hve lengi hléð skildi vara. Páll segir að Fangelsismálastofnun meti stöðuna í slíkum tilvikum með reglubundnum hætti.

„Lok slíks hlés er að jafnaði tilkynnt fanga með munnlegum hætti enda er Fangelsismálastofnun í reglulegu sambandi við fangann í slíkum tilvikum.“

Óvíst hvort stofnunin hafi verið meðvituð um hitt málið

Eiríkur Fannar var dæmdur í fimm ára fangelsi í sumar og var því látinn laus í ótímabundinn tíma aðeins fjórum mánuðum eftir að dómur féll. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort Fangelsismálastofnun hafi verið meðvituð um að hann væri grunaður um annað kynferðisbrot, nú gagnvart stúlku undir lögaldri.

„Fangelsismálastofnun hefur aðgang að málaskrá lögreglu og getur því kannað hvort fangar eigi ólokin mál hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum. Í undantekningartilvikum geta mál þó verið „læst“ í málaskránni og þar með óaðgengileg fangelsisyfirvöldum.“

Fangelsismálastofnun gerir ítarlega athugun á stöðu mála í þeim fáu tilfellum sem hlé er veitt á afplánun. Það hefur verið heimilað þrisvar undanfarið ár, fimmtán sinnum undanfarin tíu ár og átján sinnum alls frá stofnun Fangelsismálastofnunar árið 1989. 

Katrín Oddsdóttir lögmaður.vísir/stefán
Saklaus uns sekt er sönnuð

Katrín Oddsdóttir, lögmaður sem starfað hefur sem réttargæslumaður, þekkti ekki til málsins sem til umfjöllunar var þegar Vísir leitaði viðbragða frá henni. Almennt segir hún að í málum sem þessum séu sterkustu sjónarmiðin þau að brotaþolar þurfi ekki að eiga það á hættu að rekast á meintan brotamann. Sama gildi um foreldra brotaþola.

Sömuleiðis skilji hún vel þau mannúðarsjónarmið að vera með konum og börnum þegar þau séu í lífshættu. Þá verði að hafa í huga að maður sé saklaus uns sekt sé sönnuð. Hefði hún verið lögmaður manns í þessari stöðu hefði hún ráðlagt honum að halda sig alveg við það svæði þar sem hann þurfi að vera, þar sem hann þurfi að sinna hlutverki sínu. 

Fyrir liggur að Eiríkur fór með Höllu til Akureyrar á dögunum en Halla barnsmóðir hans telur, í samtali við DV, að fjölmiðlaumfjöllun um málið mega rekja til þess að fólk hafi tekið eftir honum þar og ekki verið sátt við að hann gengi laus.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×