Körfubolti

Umfjöllun: Keflavík - Grindavík 76-50 | Öruggt hjá Keflavík í Sláturhúsinu

Aron Ingi Valtýsson í Keflavík skrifar
Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur spilað vel í vetur.
Keflvíkingurinn Emelía Ósk Gunnarsdóttir hefur spilað vel í vetur. vísir/anton
Ungt lið Keflavíkur vann sinn fjórða leik gegn Grindavík örugglega í sextándu umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í dag. Leikurinn fór fram í Sláturhúsinu í Keflavík.

Með sigrinum í dag hélt Keflavík efsta sætinu með 24 stig sem þær deildu með Skallagrím fyrir leikinn. En Skallagrímur á leik við Stjörnuna seinna í dag. Stelpurnar frá Grindavík sitja sem fastast á botni deildarinnar.

Fyrir leikinn í dag voru liðin búin að mætast þrisvar sinnum, tvisvar í deildinni og einu sinni í bikar. Í öllum þrem leikjunum hafa slátrararnir frá Keflavík unnið með yfirburðum. Leikirnir í deildinni sem fóru fram á sitthvorum heimavellinum enduðu með 24 og 18 stiga mun. Síðasti leikur liðanna var í bikarnum fyrir viku síðan þar sem Keflavíkurstúlkur rúlluðu yfir Grindavík með 32 stigum. Ekki mátti búast við hörku leik hér í dag.

Fyrsti leikhlutinn fór ósköp hægt af stað og eftir 5 mínútur var staðan aðeins 6-2 Keflavík í vil. Keflavík var að pressa allan völlinn sem gestirnir voru í basli með að leysa en voru að spila flotta vörn og létu finna vel vel fyrir sér. Leikhlutinn endaði 14-12 Keflavík í vil.

Grindavík kom mun ákveðnari inn í annan leikhluta. Grindavík jafnaði leikinn 21-21 þegar þrjár mín voru búnar af leikhlutanum. Þá tók Birna Valgerður til sinna ráða og skoraði 7 stig og gaf 2 stoðsendingar áður en hún var tekin útaf. Keflavík tók 21-6 áhlaup og endaði leikhlutinn 42-27 fyrir Keflavík.

Keflavík var með tögl og haldir allan seinni hálfleikinn. Keflavíkurhraðlestin hélt áfram að malla sama hver var inná. Þegar 5 mín voru búnar af þriðja leikhluta var enginn byrjunarliðsleikmaður inná hjá Keflavík og það sem eftir liði leiks. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu að klóra í bakkan í fjórða leikhluta en Keflavík kom með svar um hæl og endaði leikinn með 26 stiga sigri Keflavíkur eða 76-50.

Af hverju vann Keflavík?

Keflavíkurliðið var eins og Díselvél í þessum leik. Voru lengi að koma sér af stað og gekk mjög illa. Sverrir Þór var með WD40 á hliðiarlínunni að úða á leikmenn sína til þess að koma stelpunum í gang. Keflavík komst í gang um miðjan annan leikhluta og tóku 21-6 áhlaup. Þegar vélinn var kominn í gang var ekki aftur snúið og gekk sóknarleikur liðsins mjög vel.

Bestu menn vallarins:

Moorer Ariana var atkvæðamest hjá Kefalvík með 18 stig, 7 fráköst og gaf 4 stöðsendingar. Emilía Ósk Gunnarsdóttir kom á eftir henni með 13 stig og tók 4 fráköst.

Hjá Grindavík var María Ben Erlingsdóttir sú eina sem var með lífsmarki. En María Skoraði 15 stig, 8 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Lovísa Falsdóttir kom á eftir henni með 10 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar.

Áhugaverð tölfræði:

Eftir fjóra leiki þessa liða hefur Keflavík unnið samtals með 100 stiga mun.

Grindavík setti niður 1 þrist af 17 skotum eða 6% nýting.

Bein lýsing: Keflavík - Grindavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×