Golf

Hverjum spá Birgir Leifur, Úlfar Jóns og Steini Hallgríms sigri á Masters?

Golfstöðin skrifar
Rory er sigurstranglegur.
Rory er sigurstranglegur. Vísir/Getty
Fyrsta risamót ársins í golfinu, Masters-mótið, hefst í dag á Augusta-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum en mótið fer fram á þessum velli ár hvert.

Búast má við spennandi keppni allt til enda en þessi völlur býður vanalega upp á mikla spennu og miklar sveiflur.

Golfstöðin verður með beinar lýsingar frá öllum fjórum keppnisdögunum en um helgina verða auk beinna lýsinga sérfræðingar í myndveri sem ræða gang mála á meðan mótinu stendur.

Golfstöðin fékk ellefu manns til að spá fyrir um efstu fimm sætin á mótinu og eru þrír á því að Rory McIlroy vinni mótið í fyrsta skipti. Það eru þeir Jón Júlíus Karlsson, fréttamaður og golfsérfræðingur, Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, og Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrverandi Íslandsmeistari sem mun lýsa mótinu.

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og fimmfaldur Íslandsmeistari í höggleik, er á því að Henrik Stenson verði fyrsti Svíinn til að vinna risamót em ÚlfarJónsson, sexfaldur Íslandsmeistari í höggleik og núverandi landsliðsþjálfari, telur að BubbaWatson vinni mótið öðru sinni.

Hér að neðan má sjá spá sérfræðinganna og svo bendum við á áskriftarleik sem Golfstöðin er með hér neðst í fréttinni.

Spár sérfræðinganna:

Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2:

1. Phil Mickelson

2. Adam Scott

3. Rory McIlroy

4. Bubba Watson

5. Dustin Johnson

Jón Júlíus Karlsson, fréttamaður á Stöð 2:

1. Rory McIlroy

2. Jason Day

3. Jason Dufner

4. Jordan Spieth

5. Phil Mickleson

Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sports:

1. Henrik Stenson

2. Zach Johnson

3. Jordan Spieth

4. Sergio Garcia

5. Bubba Watson

Sigmundur Einar Másson, fyrrverandi Íslandsmeistari:

1. Graeme McDowell

2. Kevin Streelman

3. Jason Day

4. Charl Schwartzel

5. Keegan Bradley

Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi:

1. Jason Day

2. Rory McIlroy

3, Adam Scott

4. Jimmy Walker

5. Dustin Johnson

Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis:

1. Rory Mcllroy

2. Adam Scott                                        

3. Lee Westwood                                 

4. Matt Kuchar                                      

5. Sergio Garcia

Ingi Rúnar Gíslason, íþróttastjóri GS og lýsandi á Golfstöðinni:

1. Harris English

2. Adam Scott

3. Matt Kuchar

4. Rory McIlroy

5. Justin Rose

Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrverandi Íslandsmeistari og lýsandi á Golfstöðinni:

1. Rory McIlroy

2. Lee Westwood

3. Phil Mickelson

4. Rickie Fowler

5. Adam Scott

Páll Ketilsson, ritstjóri Golf á Íslandi:

1. Dustin Johnson

2. Rory McIlroy

3. Jason Day

4. Justin Rose

5. Lee Westwood

Úlfar Jónsson, sexfaldur Íslandsmeistari í golfi og landsliðsþjálfari:

1. Bubba Watson

2. Charl Schwartzel

3. Dustin Johnson

4. Zach Johnson

5. Rory McIlroy

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnkylfingur og fimmfaldur Íslandsmeistari:

1. Henrik Stenson

2. Adam Scott

3. Sergio Garcia

4. Phil Mickelson

5. Charl Schwartzel


Tengdar fréttir

Birgir Leifur heldur með Evrópumönnum á Masters

"Þetta er örugglega vinsælasta mótið af þeim fjórum stóru í áhorfi. Það er alltaf spilað á sama vellinum og mikil hefð hefur myndast í kringum mótið,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson, fremsti kylfingur þjóðarinnar, um Masters-mótið, fyrsta risamót ársins, sem hefst á Augusta-vellinum í Georgíuríku í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×