Enski boltinn

Hvaða hljóð eru þetta, Rikki?

Ríkharð Óskar Guðnason, betur þekktur sem Rikki G, bauð upp á áður óheyrð hljóð er hann lýsti leik Man. City og Southampton um helgina.

Er Southampton átti skot í slána í leiknum rak Rikki upp stórfurðuleg, og að sama skapi stórskemmtileg, hljóð sem eflaust vöktu kátínu hjá áhorfendum.

Sjón er sögu ríkari en myndband má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×