Enski boltinn

Hull fær tvo varnarmenn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Steve Bruce, þjálfari Hull City, fékk tvo nýja leikmenn í dag.
Steve Bruce, þjálfari Hull City, fékk tvo nýja leikmenn í dag. Vísir/Getty
Hull City hefur fest kaup á varnarmönnum Andrew Robertson og Harry Maguire.

Robertson, sem er skoskur landsliðsmaður, var keyptur á 2,85 milljónir punda frá Dundee United. Hann var útnefndur besti ungi leikmaðurinn í skosku úrvalsdeildinni í fyrra.

Maguire, sem leikur í stöðu miðvarðar, kemur frá Sheffield United, en Hull borgaði 2,5 milljónir punda fyrir hann. Maguire lék með Sheffield United í þriðju efstu deild á Englandi í fyrra og var þá valinn í lið ársins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×