Innlent

Hrútaskráin fór með í líkkistuna

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guðmundur Jóhannsson með nýju hrútaskránna, sem var að koma út í þrjúþúsund eintökum.
Guðmundur Jóhannsson með nýju hrútaskránna, sem var að koma út í þrjúþúsund eintökum. Vísir/Magnús Hlynur
„Já, það er rétt, bóndinn var jarðaður í haust og bað ættingja sína sérstaklega áður en hann dó að þau myndu setja eintak af hrútaskránni í líkkistuna svo hann hefði eitthvað að lesa þarna uppi“, segir Guðmundur Jóhannsson, ráðunautur og ritstjóri nýju hrútaskrárinnar þegar hann var spurður hvort þetta væri rétt með bóndann á Norðurlandi.

Hrútaskráin er eitt allra vinsælasta blað á meðal sauðfjárbænda og annarra, sem áhuga hafa á íslensku sauðkindinni. Í skránni er upplýsingar um tæplega fimmtíu bestu hrúta landsins á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands og Sauðfjársæðingastöð Vesturlands. Afgreiðsla á fersku svæði á báðum stöðunum hefst 1. desember.

Sæðisskammturinn í eina á kostar 720 krónur. Síðustu daga hefur verið tekið sæði úr nokkrum hrútum, sem er djúpfryst og verður sent til Bandaríkjanna til þeirra, sem eru með íslenskt sauðfé þar. Þorsteinn Ólafsson,dýralæknir hefur séð um þá framkvæmd.

Forystuhrúturinn Ami, sem hægt er að fá sæði úr.Vísir/Magnús Hlynur
Sæði úr forystuhrút og ferhyrndum hrút

Nú geta sauðfjárbændur pantað sæði úr forystuhrútnum Ama frá Sigtúnum í Öxarfirði.

„Ami er há- og grannvaxinn, reistur og léttbyggður svo sem forystufé ber að vera. Hann er stóreygður og hefur til að bera mikla árvekni, örar hreyfingar og ekki spillir höfðinglegt fasið og yfirbragðið. Hann er þægur í rekstri og ljúfur við fólk en á það til að amast við öðru fé og dregur nafn sitt af því. Ami ku vera vanafastur með afbrigum svo sem títt er um forustufé“, segir í Hrútaskránni.

Ferhyrndi hrúturinn Höfði, sem margir panta sæði úr.Vísir/Magnús Hlynur
Þá verður líka hægt að fá sæði úr ferhyrndum hrúti en sá heitir Höfði frá Mörtutungu 2 á Síðu. Höfði var fengin á stöðvarnar til að gefa fleiri bændum tækifæri til að eignast ferhyrndar kindur svo varðveita megi þennan eiginleika í sauðfjárstofninum en nokkur ár eru síðan slíkur hrútur var síðast á sæðingastöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×