Bíó og sjónvarp

Hrútar tilnefnd sem besta kvikmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Grímur Hákonarson ásamt leikurunum Sigurði Sigurjónssyni og Theódóri Júlíussyni.
Grímur Hákonarson ásamt leikurunum Sigurði Sigurjónssyni og Theódóri Júlíussyni. vísir/getty
Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, hefur verið tilnefnd sem besta kvikmyndin á evrópsku kvikmyndaverðlaununum í ár.

Myndin hefur síðastliðna mánuði notið mikillar velgengni á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum heimsins. Hún hefur nú keppt til verðlauna á níu alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, unnið aðalverðlaunin á sjö þeirra og alls unnið til þrettán verðlauna.

Aðeins sex myndir eru tilnefndar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þau eru á vegum Evrópsku kvikmyndaakademíunnar og munu fara fram í Berlín í Þýskalandi þann 12. desember næstkomandi.

Íslenskar kvikmyndir hafa í gegnum tíðina hlotið nokkrar tilnefningar í hinum ýmsu flokkum á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum en aðeins tveir Íslendingar hafa hreppt verðlaun.

Árið 1991 hlaut Hilmar Örn Hilmarsson verðlaun fyrir bestu tónlist í Börnum náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson og árið 2000 var Björk valin besta leikkonan fyrir aðalhlutverk sitt í Dancer in the Dark eftir Lars von Trier.


Tengdar fréttir

Margir telja að Hrútar fái Óskarstilnefningu

Fáar myndir hafa notið jafn mikila vinsælda eins og hin umtalaða íslenska verðlaunamynd Hrútar en vísa þurfti rúmlega 100 manns frá við frumsýningu myndarinnar í Telluride.

Hrútar unnu aðalverðlaunin í Zürich

Kvikmyndin Hrútar vann um helgina "Gullna augað“ á kvikmyndahátíðinni í Zürich í Sviss. Þetta eru aðalverðlaunin í flokki alþjóðlegra kvikmynda í fullri lengd en alls tóku fimmtán myndir þátt í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×