Bíó og sjónvarp

Hrútar seld til Bandaríkjanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrútarnir í Cannes.
Hrútarnir í Cannes. VÍSIR/BRYNJAR SNÆR
Gengið hefur verið frá sölu á verðlaunamyndinni Hrútum Bandaríkjanna. Það var framleiðslu- og dreifingarfyrirtækið Cohen Media Group sem keypti dreifingarréttinn vestanhafs en gengið var frá samningum í gær. Þetta kemur fram á vefsíðunni Klapptré.

Á undanförnum vikum hefur myndin verið seld til rúmlega þrjátíu landa. Ekki hefur það skemmt fyrir framleiðendum myndarinnar að hún vann Un Certain Regard verðlaunana í samnefndum flokki á kvikmyndahátíðinni í Cannes um síðustu helgi.

Þetta er í fyrsta sinn í 68 ára sögu keppninnar sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna á hátíðinni.

Í Un Certain Regard flokknum eru veitt verðlaun í nokkrum flokkum og fékk Hrútar sjálf Un Certain Regard-verðlaunin (Prize of Un Certain Regard). Forseti dómnefndar var leik- og kvikmyndagerðarkonan Isabella Rossellini.

Hrútar er önnur íslenska kvikmyndin sem kemst í Un Certain Regard keppnina. Árið 1993 komst hin goðsagnakennda mynd Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson þangað.

Hrútar var frumsýnd hér á landi í vikunni og hefur fengið góðar viðtökur hér á landi. 


Tengdar fréttir

Hrútar frumsýnd á Íslandi í kvöld

Verðlaunamyndin Hrútar verður frumsýnd hér á landi norður í Reykjadal í kvöld. Stöð tvö hitti sigurreifa menn á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Sögulegir Hrútar í Cannes

Kvikmyndahatíðin í Cannes er haldin 13 – 24 maí þetta árið og er þetta 68 skiptið sem þessi virta hátíð er haldin. Íslendingar settu mark sitt á hátíðina í ár en í fyrsta sinn í 22 ár var íslensk mynd í aðalprógrammi hátíðarinnar, myndin Hrútar eftir Grím Hákonarson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×