Erlent

Hrinti manni fram af lestarpalli

Samúel Karl Ólason skrifar
Manninum var hrint af pallinum af tilefnislausu.
Manninum var hrint af pallinum af tilefnislausu.
Lögreglan í Prag leitar nú manns sem hrinti öðrum fram af lestarpalli. Árásin virðist vera tilefnislaus en skömmu áður hafði fórnarlambið gengið fram hjá manninum, þar sem hann sat í rúllustiga lestarstöðvarinnar. Atvikið náðist á myndband sem lögreglan hefur birt með því markmiði að einhver stígi fram sem þekki árásarmanninn.

Maðurinn elti fórnarlambið og veittist að honum á lestarpallinum og hrinti honum fram af pallinum og á lestarteinana. Því næst gengur hann rólega í burtu og úr lestarstöðinni, í stað þess að bíða eftir næst lest.

Samkvæmt Independent er maðurinn sem lenti á teinunum 57 ára gamall og hlaut hann margvísleg meiðsl í fallinu og var rúmfastur í nokkrar vikur. Aðrir íbúar borgarinnar komu manninum til bjargar og náðu honum upp á lestarpallinn aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×