Höskuldur: Fullyrðingar Jóhönnu rangar 11. október 2009 17:11 Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að fullyrðingar forsætisráðherra í bréfi til forsætisráðherra Noregs séu rangar. Hann segir að hvorki hann né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hafi farið fram á 2000 milljarða lán frá Noregi. Framsóknarmenn hafa sakað Jóhönnu um að reyna koma í veg fyrir að Íslendingar fái lán frá Norðmönnum framhjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Sjálf segir Jóhanna að um fráleitar ásakanir sé að ræða. Forsætisráðuneytið birti í dag bréfaskipti Jóhönnu Sigurðardóttur og Jens Stoltenbergs vegna málsins. „Þegar hún leggur málið svona upp getur hún ekki fengið annað en svona svar," segir Höskuldur. Hann segir að hvorki hann né Sigmundur hafi talað um svona hátt lán við norsku þingmennina. Þeir hafi þess í stað lagt áherslu á að koma á lánalínu á milli landanna. Höskuldur segir að bréf Jóhönnu staðfesta það sem hann og Sigmundur hafi áður sagt um málið. „Bréfið staðfestir það sem við heyrðum í Noregi að Jóhanna væri að kvarta yfir því að sér reyndist málið erfitt heima fyrir. Bréfið staðfestir allt það sem við höfum sagt í málinu. Sérstaklega að það hefur ekki enn borist formleg beiðni frá Íslendingum um lánalínu eða lán frá Noregi óháð Alþjóðagjaldeyrissjóðnum." Höskuldur er enn þeirra skoðunar miklar líkur séu á því að Íslendingar fái lán frá Norðmönnum verði slík beiðni send. „Afstaða okkar er óbreytt og við munum fylgja þessu eftir."
Tengdar fréttir Höskuldur: Fórum ekki fýluferð til Noregs Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sig og formann flokksins ekki hafa farið í fýluferð til Noregs til að liðka um fyrir risaláni til Íslands. Þvert á móti hafi þeir greint mikinn vilja meðal norskra þingmanna. Höskuldur segir að hafi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, beðið forsætisráðherra Noregs um að segja ekki stæði til að veita Íslendingum slíkt lán sé um skemmdarverk að ræða. 10. október 2009 10:43 Noregsferð Sigmundar og Höskuldar gengur með ágætum Ferð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Höskuldar Þórhallssonar til Noregs hefur gengið með miklum ágætum. „Gærdagurinn var notaður til að undirbúa fundarhöld dagsins og voru félagar okkar í norska Miðflokknum boðnir og búnir að aðstoða, þrátt fyrir að hafa verið að mynda ríkisstjórn nóttina á undan.“ 8. október 2009 13:01 Jóhanna: Ásakanir framsóknarmanna fráleitar Framsóknarmenn saka forsætisráðherra um að reyna koma í veg fyrir að Íslendingar fái lán frá Norðmönnum framhjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fráleitar ásakanir segir forsætisráðherra. 10. október 2009 18:28 Sigmundur: Jóhanna spillir fyrir að lánið fáist Íslendingum stendur ekki til boða að fá risalán frá Noregi upp á rúma tvö þúsund milljarða króna. Þetta kemur fram í svarbréfi Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Framsóknarmenn saka Jóhönnu um að senda villandi skilaboð til Noregs til að koma í veg fyrri að lánið fáist. 10. október 2009 12:47 Framsóknarmenn fengu ráð frá vogunarsjóði Fulltrúar frá vogunarsjóðnum Boreas Capital veittu Framsóknarmönnum ráðgjöf þegar þeir funduðu með norskum þingmönnum í vikunni. Sjóðurinn tengist meðal annars fyrrverandi eigendum Landsbankans. Formaður Framsóknarflokksins segir ekkert óeðlilegt við aðkomu þessara manna. 10. október 2009 18:48 Bréfaskipti Jóhönnu og Stoltenbergs birt Forsætisráðuneytið hefur birt nýleg bréfaskipti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í tengslum við fullyrðingar forystumanna Framsóknarflokksins um áhuga norskra þingmanna að veita Íslendingum lán fram hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 11. október 2009 16:48 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira
Höskuldur: Fórum ekki fýluferð til Noregs Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sig og formann flokksins ekki hafa farið í fýluferð til Noregs til að liðka um fyrir risaláni til Íslands. Þvert á móti hafi þeir greint mikinn vilja meðal norskra þingmanna. Höskuldur segir að hafi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, beðið forsætisráðherra Noregs um að segja ekki stæði til að veita Íslendingum slíkt lán sé um skemmdarverk að ræða. 10. október 2009 10:43
Noregsferð Sigmundar og Höskuldar gengur með ágætum Ferð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Höskuldar Þórhallssonar til Noregs hefur gengið með miklum ágætum. „Gærdagurinn var notaður til að undirbúa fundarhöld dagsins og voru félagar okkar í norska Miðflokknum boðnir og búnir að aðstoða, þrátt fyrir að hafa verið að mynda ríkisstjórn nóttina á undan.“ 8. október 2009 13:01
Jóhanna: Ásakanir framsóknarmanna fráleitar Framsóknarmenn saka forsætisráðherra um að reyna koma í veg fyrir að Íslendingar fái lán frá Norðmönnum framhjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fráleitar ásakanir segir forsætisráðherra. 10. október 2009 18:28
Sigmundur: Jóhanna spillir fyrir að lánið fáist Íslendingum stendur ekki til boða að fá risalán frá Noregi upp á rúma tvö þúsund milljarða króna. Þetta kemur fram í svarbréfi Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Framsóknarmenn saka Jóhönnu um að senda villandi skilaboð til Noregs til að koma í veg fyrri að lánið fáist. 10. október 2009 12:47
Framsóknarmenn fengu ráð frá vogunarsjóði Fulltrúar frá vogunarsjóðnum Boreas Capital veittu Framsóknarmönnum ráðgjöf þegar þeir funduðu með norskum þingmönnum í vikunni. Sjóðurinn tengist meðal annars fyrrverandi eigendum Landsbankans. Formaður Framsóknarflokksins segir ekkert óeðlilegt við aðkomu þessara manna. 10. október 2009 18:48
Bréfaskipti Jóhönnu og Stoltenbergs birt Forsætisráðuneytið hefur birt nýleg bréfaskipti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í tengslum við fullyrðingar forystumanna Framsóknarflokksins um áhuga norskra þingmanna að veita Íslendingum lán fram hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 11. október 2009 16:48