Tónlist

Horfið á fyrsta myndband Quarashi í tíu ár

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndband Quarashi við lagið Rock On er komið á netið en þetta er fyrsta lag og myndband sveitarinnar í áratug.

Í myndbandinu koma við sögu þeir Egill „Tiny“ Thorarensen, Steinar Fjeldsted og Sölvi Blöndal en myndbandinu er leikstýrt af Eilífi Erni Þrastarsyni.

Tökur á myndbandinu fóru fram um síðustu helgi og var það meðal annars tekið upp í Hvalfjarðargöngunum.

Quarashi gaf plötuna Guerilla Disco árið 2005, rétt áður en sveitin lagði upp laupana. Hún snýr hins vegar aftur um verslunarmannahelgina og skemmtir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×