Viðskipti erlent

Hlutabréf lækka út um allan heim

Sæunn Gísladóttir skrifar
Í kjölfar lokunar hlutabréfamarkaða í Asíu hefur gengi hlutabréfa í Evrópu fallið.
Í kjölfar lokunar hlutabréfamarkaða í Asíu hefur gengi hlutabréfa í Evrópu fallið. vísir/afp
Í nótt lækkaði gengi hlutabréfa á hlutabréfamörkuðum í Asíu, í kjölfarið hefur gengi hlutabréfa í Evrópu og Bandaríkjunum lækkað einnig.

Í nótt lækkaðu allar stærstu hlutabréfavísitölur í Asíu um í kringum tvö prósent, Nikkei 225 vísitalan í Japan um 1,73 prósent og Shanghai vísitalan um 1,85 prósent.

Það sem af er degi hefur FTSE 100 vísitalan í Bretlandi lækkað um 1,6 prósent, DAX vísitalan í Þýskalandi hefur lækkað um 1,8 prósent og Euro Stoxx 50 hefur lækkað um 1,92 prósent.

Í Bandaríkjunum hefur Dow Jones vísitalan lækkað um tæplega 0,5 prósent og S&P 500 lækkað um 0,4 prósent.

Á Íslandi er þó aðra sögu að segja. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,73 prósent í dag, eitthvað er bæði um hækkanir og lækkanir. Gengi hlutabréfa í Eik hafa lækkað mest eða um 1,43 prósent.

Sérfræðingar telja að rekja megi lækkunina til þess að fjárfestar séu að missa trúna á því að seðlabankar geti ýtt undir hagvöxt á sama hátt og þeir hafa verið að gera eftir efnahagskreppuna 2008. Fjárfestar undirbúa sig nú undir það að stýrivextir verði hækkaðir í Bandaríkjunum þann 21. september og að fleiri seðlabankar fara út í frekari aðgerðir til að ýta undir hagvöxt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×