Viðskipti erlent

Hlutabréf American Apparel hækka eftir brottvikningu forstjóra

Randver Kári Randversson skrifar
Fyrir utan verslun American Apparel í New York.
Fyrir utan verslun American Apparel í New York. Vísir/AFP
Hlutabréf í bandaríska fatafyrirtækinu American Apparel hækkuðu í verði í gær. Frá þessu er greint á vef New York Post. Dov Charney hafði fyrr um daginn verið vikið úr starfi forstjóra fyrirtækisins vegna ásakana á hendur honum um kynferðislega áreitni við starfsmenn.

Charney var jafnan umdeildur einkum vegna markaðsherferða fyrirtækisins sem sýndu oft fáklæddar fyrirsætur og þóttu mjög ögrandi.

Fyrirtækið komst einnig í vandræði vegna stefnu Charneys um að hafa allar vörur American Apparel framleiddar í Bandaríkjunum, öfugt við aðra bandaríska fataframleiðendur, sem flestir hafa fært framleiðslu sína úr landi. Árið 2009 kom það svo á daginn að aðal verksmiðja fyrirtækisins, sem staðsett er í Los Angeles var mönnuð ólöglegum innflytjendum og þurfti fyrirtækið að segja upp 1500 starfsmönnum verksmiðjunnar af þeim sökum. Í kjölfarið stöðvaðist framleiðsla fyrirtækisins, með tilheyrandi vöruskorti og tekjutapi.

Mikið tap hefur verið á rekstri American Apparel undanfarin ár. Árið 2013 varð tap upp á 106 milljónir dollara og 37 milljónir árið áður. Hlutabréfamarkaðurinn vestanhafs virðist hafa tekið tíðindunum af brottvikningu Charneys vel, en hlutabréf í American Apparel hækkuðu í gær um 22%.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×