Innlent

Hlín hyggst kæra nauðgun

Bjarki Ármannsson og Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifa
Hlín Einarsdóttir ætlar að kæra fyrrverandi samstarfsfélaga sinn fyrir nauðgun í fyrramálið. Þann sama og kærði þær systur fyrir fjárkúgun. Systir hennar, Malín Brand, fullyrðir að ekki hafi verið um kúgun að ræða heldur sáttargjörð vegna meintrar nauðgunar.

Lögfræðingur Hlínar Kolbrún Garðarsdóttir staðfestir að lögð verði fram kæra og að lögð verði fram gögn frá neyðarmóttöku nauðgana.

„Á morgun verður lögð fram kæra vegna nauðgunar. Ég staðfesti það að umbjóðandi minn fór á neyðarmóttöku fljótlega eftir atvikið og gögn eru aðgengileg lögreglu vegna þess,“ segir Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður Hlínar.

Malín sendi yfirlýsingu til fjölmiðla nú síðla dags ákæru mannsins gegn þeim systrum. Í henni segist hún að kvöldi 4.apríl síðastliðins hafa fengið símtal frá Hlín sem sagðist hafa verið nauðgað af fyrrverandi samstarfsfélaga sínum.

Malín segir Hlín hafi velt því fyrir sér að kæra manninn. Hann hafi reynt að ná sambandi við hana daginn eftir en hún ekki viljað tala við hann. Malín segist hafa rætt við umræddan samstarfsfélaga og hann  hafi lagt áherslu á að nauðgunarkæra, hvort sem hún leiddi til ákæru og sakfellingar eða ekki valda sér miklum hnekki. Systir hennar hafi fallist á þessi sjónarmið og úr hafi orðið sátt með greiðslu miskabóta.

Samskiptin fóru á milli Malínar og umrædds manns. Þá veitti Malín sáttafénu viðtöku en samkvæmt heimildum Vísis greiddi maðurinn þeim 700 þúsund krónur gegn því að þær myndu ekki kæra hann fyrir nauðgun.

Kolbrún segir segir lögreglu skoða upplýsingar sem hafa komið fram í fjölmiðlum. Þá sér í lagi hvað varðar rannsókn á tilraun systranna Hlínar og Malínar til fjárkúgunar forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. „Ég hef ráðlagt henni að tjá sig ekkert um rannsókn þessara mála á meðan rannsóknin stendur. Ég hef gert athugasemd við lögreglu varðandi þær upplýsingar sem hafa verið í fjölmiðlum síðustu daga, sem mér finnst einkennilegt. Mér skilst að lögregla sé að skoða það.“


Tengdar fréttir

„Engin venjuleg saga sem þær eiga þessar systur“

Friðrika Benónýsdóttir tók viðtal við Hlín Einarsdóttur, sem birtist í Stundinni í dag, tveimur vikum fyrir handtökuna á Völlunum á föstudag. Hlín lýsir heilaþvætti sem hún varð fyrir í Vottum Jehóva og óútskýrðu fráfalli móður sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×