Hjálprćđisherinn bjargar jólafötunum

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Hvíta slaufan, lindinn og svarta pífuskyrtan eru úr Gyllta kettinum og hvítu gallabuxurnar frá Spúútnik. „Ţetta átti ađ vera svona millistig í jólaklćđnađinum, milli hversdags og kokteils,“ útskýrir Bjartmar og nefnir ađ áferđin á fötunum sýni ţó ađ ţau eigi sér sögu og séu ađeins gömul og notuđ, en ţađ sé bara flott.

Bjartmar Þórðarson segir að í Hjálpræðishernum og Kolaportinu leynist oft glæsileg jakkaföt. Efnahagsástandið hvetji til þess að hugmyndafluginu sé beitt í fatavali og samsetningu en snjallt sé að poppa upp eldri klæðnað með nýjum fylgihlutum.

Þegar færi gefst reyni ég nú alltaf að gera góð kaup. Yfirleitt hef ég reynt að finna eitthvað sniðugt erlendis en þar sem ég mun aldrei komast aftur til útlanda, svo lengi sem ég lifi ef marka má ástandið í dag, þá er eins gott að nota hugmyndaflugið og sjá hvað er til í notaða dótinu," segir Bjartmar Þórðarson kaldhæðinn og hlær.

Jakkinn er úr Spúútnik en skyrtan og bindiđ úr Gyllta kettinum. „Ţetta eru svona retro kreppujólaföt, háskólamiđbćjarlúkkiđ.“
Jakkinn er úr Spúútnik en skyrtan og bindiđ úr Gyllta kettinum. „Ţetta eru svona retro kreppujólaföt, háskólamiđbćjarlúkkiđ.“

Bjartmar segist í gegnum tíðina oft hafa leitað fanga hjá Hjálpræðishernum eða í Kolaportinu. „Það er kannski ekki eins mikið af fatnaði í Kolaportinu og var á árum áður en ég hef líka kíkt í Spúútnik og var mjög hrifinn af Elvis, meðan að sú búð var og hét. Annars má alltaf hlaupa inn í Kolaportið, halda fyrir nefið, og athuga hvað er til," útskýrir Bjartmar og nefnir að miklu skipti að hafa opinn huga þegar haldið er í fataleit.

„Margir eru hræddir við að blanda saman og finnst öruggara að versla alltaf á sama staðnum. Fólk leyfir sér oft ekki að hugsa út fyrir kassann og vera fordómalaust í leitinni. Ég er hins vegar óhræddur við að versla hvar sem er. Ég myndi kaupa hlut í Rúmfatalagernum ef hann væri flottur og hvað fatnað varðar þá geta sum föt virkað vel í samhengi við annan fatnað þótt þau sé ekkert sérstök ein og sér."

Hér klćđist Bjartmar hvítum gallabuxum frá Spúútnik og jakka frá Kormáki og Skildi. Hvítu leđurskórnir međ punktamynstrinu eru líka ţađan. Skyrtan og bindiđ er í einkaeigu en Bjartmar leikur sér stundum ađ ţví ađ brjóta bindiđ inn á viđ međ bindisnćlu til ađ breyta um svip. Hér er hátíđardressiđ komiđ.

Bjartmari þykir það skemmtilegasta við notuð föt vera að ólíklegt er að þú sjáir marga í sama klæðnaðinum. „Ég mæli sérstaklega með Hjálpræðishernum þegar karlar vilja finna sér flott jakkaföt. Þau læðast alltaf þar inn öðru hvoru," segir Bjartmar sem hefur keypt sér þó nokkur jakkaföt þar í gegnum tíðina og nefnir að lokum: „Lykilatriði er að skilja pressuna eftir heima þegar farið er að versla og ekki kaupa neitt nema þú ætlir að nota það!"

Fleiri fréttir - Jólavefur

Ţú ert hér: Forsíđa / Jólavefur / Hjálprćđisherinn bjargar jólafötunum