Erlent

Herlög forseta Filippseyja verða svipuð og í tíð Marcos

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Herlögin gilda á eynni allri og eru hermenn sýnilegri en áður í stærstu borgum. Myndin er frá Davao þar sem Duterte var áður borgarstjóri. Duterte er þekktur fyrir að vera óvæginn í garð glæpamanna.
Herlögin gilda á eynni allri og eru hermenn sýnilegri en áður í stærstu borgum. Myndin er frá Davao þar sem Duterte var áður borgarstjóri. Duterte er þekktur fyrir að vera óvæginn í garð glæpamanna. vísir/epa
Ófremdarástand ríkir um þessar mundir í Marawi-borg á Mindanao, syðstu ey Filippseyja, en meðal annars hafa vígamenn brugðið á það ráð að taka tugi kirkjugesta í gíslingu. Krafa þeirra er að herlögum verði aflétt og að þeir fái að yfirgefa borgina óáreittir.

Herlögum var lýst yfir á eynni eftir að herinn réðst til atlögu gegn öfgahreyfingunni Abu Sayyaf, sem hefur lýst yfir stuðningi við Íslamska ríkið, með þeim afleiðingum að liðsmenn hennar tvístruðust og leituðu inn í Marawi. Aðgerð hersins átti sér stað á þriðjudag.

Þegar inn í borgina var komið lögðu mennirnir eld að kaþólskri kirkju, fangelsi borgarinnar, tveimur skólum, tveimur brúm og tóku yfir ýmsar byggingar í miðborginni. Um 200 þúsund manns búa í borginni en þúsundir hafa gripið til þess ráðs að flýja hana á meðan bardagar hersins og skæruliðanna standa yfir.

Í yfirlýsingu frá erkibiskupnum Socrates Villegas, æðsta klerki kaþólsku kirkjunnar á Filippseyjum, segir að vígamennirnir hafi ráðist inn í dómkirkju borgarinnar og haldi þar presti, þremur starfsmönnum og tíu kirkjugestum í gíslingu.

„Þeir hóta að taka gíslana af lífi ef hermenn stjórnarinnar verða ekki kallaðir til baka frá borginni,“ segir í yfirlýsingu Villegas. „Presturinn tók ekki þátt í átökunum. Hann er óvopnaður og engum stafar ógn af honum. Gíslatakan á honum og öðrum kirkjugestum brýtur gegn öllum reglum vopnaðra átaka.“

Alls er talið að um hundrað meðlimir samtakanna hafi ráðist inn í borgina eftir aðgerðina. Þegar það gerðist var Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, í opinberri heimsókn í Rússlandi. Duterte er þekktur fyrir að vera óvæginn í garð glæpona og lýsti nær umsvifalaust yfir herlögum á eynni. Þau munu gilda í sextíu daga. Ef átökin dragast á langinn gæti komið til greina að setja herlög á víðar í landinu.

„Sum okkar hafa upplifað herlög, þegar Marcos ríkti, og ég get fullvissað ykkur um það að herlögin nú verða ekki öðruvísi á nokkurn hátt. Þau munu verða mjög harkaleg,“ segir Duterte. Vísar hann þar til Ferd­inand Marcos forseta sem ríkti á Filippseyjum frá 1965-86, þar af árin 1972-81 sem einræðisherra í krafti herlaga.

Áætlanir forsetans hafa sætt gagnrýni víða en margir telja að vandamál landsins sé ekki hægt að leysa með byssukúlum. Forsetinn lætur þau orð sem vind um eyru þjóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×