Fótbolti

Henke vill losna við Arnór | Þykir of dýr

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór er á förum frá Helsingborg
Arnór er á förum frá Helsingborg mynd/heimasíða helsingborg
Henrik Larsson, þjálfari Helsingborg, vill losna við Arnór Smárason frá félaginu. Sænska goðsögnin segir Skagamanninn of þungan á fóðrum og hann hefur fengið þau skilaboð að leita sér að nýju liði.

„Eins og Henke sagði sjálfur, þá snýst þetta ekki um fótbolta heldur peninga. Þetta er leiðinlegt en ég verð að sætta mig við stöðuna,“ sagði Arnór en fréttirnir komu honum á óvart.

„Þetta kom mér í opna skjöldu. Félagið keypti mig, samdi við mig og ég á tvö ár eftir af samningi mínum,“ sagði Arnór í samtali við Kvällsposten en samkvæmt heimildum blaðsins nema mánaðarlaun hans um 100.000 sænskra króna.

Arnór hefur æft með Helsingborg að undanförnu og Larsson hefur hrósað honum fyrir gott viðhorf.

„Mér finnst gaman að spila fótbolta svo það er eðlilegt fyrir mig að leggja mig fram á æfingum.

„Mér hefur verið tilkynnt að ég fái ekki að spila ef ég verð áfram hjá félaginu,“ sagði Arnór sem hefur verið í viðræðum við nokkur félög. Hann vill þó ekki ana að neinu og vanda valið á næsta áfangastað sínum á ferlinum.

Arnór, sem er 26 ára, hefur verið í herbúðum Helsingborg frá árinu 2013 en hann kom til sænska liðsins frá Esbjerg í Danmörku.


Tengdar fréttir

Halldór Orri ekki í hópnum hjá Henke

Halldór Orri Björnsson var ekki í leikmannahópi Falkenbergs FF í kvöld þegar liðið vann 2-0 sigur á Arnór Smárasyni og félögum í Helsingborgs IF í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Halldór Orri: Mjög heillandi að reyna að læra eitthvað af Henke

"Nú þarf maður að fara rifja upp sænskuna,“ segir glaðbeittur Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, í samtali við Fréttablaðið en Garðabæjarliðið tilkynnti í gær um brotthvarf þessa frábæra sóknarmanns frá uppeldisfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×