Körfubolti

Helena verður ekki áfram í Ungverjalandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir telur ólíklegt að hún muni spila áfram með ungverska liðinu Miskolc.

Helena hefur verið á mála hjá liðinu í vetur og keppir nú um bronsverðlaun deildarinnar eftir að hafa tapað í undanúrslitum úrslitakeppninnar.

„Framhaldið hjá mér er alveg óljóst en ég sé ekki fyrir mér að ég komi hingað aftur,“ sagði hún í samtali við Karfan.is.

„Það hafa komið ýmis spennandi tilboð síðustu mánuði og við tökum okkur því bara tíma og sjáum hvaða ákvörðun er best fyrir mig.“

Miskolc varð deildarmeistari í vetur en náði ekki að fylgja eftir góðum árangri í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×