Körfubolti

Helena á heimleið í Hauka

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Allar líkur eru á því að Helena Sverrisdóttir verði á mála hjá Haukum á næstu leiktíð. Um gríðarlega mikinn liðsstyrk yrði að ræða fyrir Hafnarfjarðarliðið enda hefur Helena verið fremsta körfuboltakona landsins um árabil.

„Það er ansi líklegt en ekkert er staðfest enn, enda ekki búið að undirrita neitt,“ sagði Kjartan Freyr Ásmundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, í samtali við Fréttablaðið.

Líklegt er að Helena yrði einnig í þjálfarateymi liðsins auk þess að sinna þjálfun fyrir yngri flokka. Ef allt gengur að óskum er líklegt að gengið verði frá samningi við hana nú í vikunni.

Helena spilaði í Póllandi á síðustu leiktíð en hefur einnig spilað í Slóvakíu og Ungverjalandi eftir að hún útskrifaðist úr TCU-háskólanum árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×