Sport

Heimsmeistaramót íslenska hestsins í beinni á Stöð 2 Sport

Heimsmeistaramót íslenska hestsins er að þessu sinni haldið í höfuðborg Þýskalands og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið í miðri stórborg.
Heimsmeistaramót íslenska hestsins er að þessu sinni haldið í höfuðborg Þýskalands og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið í miðri stórborg.
Stöð 2 Sport hefur tryggt sér útsendingarréttinn á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem haldið verður í Berlín í Þýskalandi dagana 4. - 11. ágúst og verður Stöð 2 Sport með beinar útsendingar frá mótinu alla keppnisdagana og samantektarþætti á kvöldin. Þetta mun verða í fyrsta skipti sem Heimsmeistaramóti íslenska hestsins verður sjónvarpað í heild sinni í beinni útsendingu með íslenskum lýsingum. 

Setningarathöfn mótsins fer fram á sunnudag og þá mun Dorrit Moussaieff, forsetafrú, ríða í gegnum Brandenborgarhliðið í Berlín ásamt hópreið íslenskra gæðinga sem fara í gegnum miðborgina að mótsvæðinu.  Opnunarhátíð mótsins verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport, sem hefst klukkan 13:00 á sunnudaginn að íslenskum tíma.

Heimsmeistaramót íslenska hestsins er að þessu sinni haldið í höfuðborg Þýskalands og er þetta í fyrsta sinn sem mótið er haldið í miðri stórborg. Mikill áhugi er fyrir mótinu, bæði á Íslandi og meðal aðdáenda og eigenda íslenskra hesta um víða veröld. Um tvö þúsund Íslendingar hafa pantað sér miða á mótið en reiknað er með þrjátíu þúsund áhorfendum á mótinu.

Íslenskir hestar frá 15 löndum munu taka þátt í heimsmeistaramótinu í Berlín en alls eru 163 þátttakendur skráðir til leiks, þar á meðal 8 fyrrverandi heimsmeistarar. Á heimsmeistaramótinu eru sjö keppnisgreinar; tölt, slaktaumatölt, fjórgangur, fimmgangur, gæðingaskeið, 250 metra skeið og 100 metra flugskeið. Þá munu 44 kynbótahross hljóta dóm í kynbótasýningu. 

Auk beinna útsendinga verða samantektarþættir á hverju kvöldi þar sem farið verður yfir hápunkta dagsins og sýnd eru viðtöl við keppnisknapa og gesti mótsins. Að mótinu loknu verða vikulegir þættir á dagskrá í ágúst mánuði, þar sem fjallað verður um mótið og mannlífið í kringum það.  Viðtöl við keppnisknapa íslenska landsliðsins, þjálfara og aðstandendur.

Telma Tómasson, Logi Laxdal og Steindór Guðmundsson munu hafa umsjón með íslenskum lýsingum frá Heimsmeistaramóti íslenska hestsins á Stöð 2 sport.

DAGSKRÁ MÓTSINS á Stöð 2 Sport á íslenskum tíma.

SUNNUDAGUR 4. ÁGÚST

13:00 - Opnunarhátíð - Riðið um Brandenborgarhlið

MÁNUDAGUR 5. ÁGÚST

06:00-15:00 - Kynbótahross - byggingadómar

15:30-16:40 - Kynbótahross – reiðdómar 5 vetra hryssur

21:00-21:30 - Samantekt frá fyrsta degi 30 mín

ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST

06:30-10:15 - Fjórgangur (V1) forkeppni

10:15-11.30 - Hlé

11:30-14:30 - Fjórgangur (V1) forkeppni

15:15-17:55 - Kynbótahross – reiðdómar 6 vetra og 7 vetra og eldri hryssur

21:00-21:30 - Samantekt frá öðrum degi 30 mín

MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST

06:00-10:30 - Kynbótahross – reiðdómar stóðhestar – allir flokkar

11:30-14:15 - Fimmgangur (F1) forkeppni

14:15-14:45 - Hlé

14:45-17:30 - Fimmgangur (F1) forkeppni (sýnt á STÖÐ 2 SPORT 3)

21:30-22:00 - Samantekt frá þriðja degi 30 mín

FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST

06:30-09:15 - Slaktaumatölt (T2) forkeppni

09:15-09:45 - Hlé

09:45-11:30 - Slaktaumatölt (T2) forkeppni

12:00-13:30 - Kynbótahross – yfirlitssýning hryssur

14:00-14:45 - Fjórgangur (V1) A-úrslit ungmenna

15:30-17:30 - Gæðingaskeið (PP1)

17:30 - Gæðingaskeið (PP1) verðlaunaafhending

21:30-22:00 - Samantekt frá fjórða degi 30 mín

FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST

06:30-10:15 - Tölt (T1) forkeppni

10:15-11:30 - Hlé

11:30-13:15 - Tölt (T1) forkeppni

13:30 - Slaktaumatölt (T2) A-úrslit ungmenna

14:45-16:15 - 250 m skeið (P1) undanriðlar

16:30 - Ræktunarbússýningar

21:00-21:30 - Samantekt frá fimmta degi 30 mín

LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST

07:00-07:45 - Slaktaumatölt (T2) B-úrslit

08:00-08:45 - Fimmgangur (F1) A-úrslit ungmenna

09:00-09:45 - Tölt (T1) B-úrslit

10:00-11:30 - Kynbótahross – yfirlitssýning stóðhestar

12:00 - Sýning á gömlum kempum

12:45-14-15 - 250 m skeið (P1) undanriðlar

14:15-14:30 - 250 metra skeið (P1) verðlaunafhending

14:30-15:15 - Kynbótahross – hryssur - kynning

15:45-16:30 - Fjórgangur (V1) B-úrslit

16:45-17:30 - Fimmgangur (F1) B-úrslit

21:00-21:30 - Samantekt frá sjötta degi 30 mín

SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST

07:15-08:00 - Slaktaumatölt (T2) A-úrslit

08:15-09:00 - Tölt (T1) A-úrslit ungmenna

09:15-10:00 - Tölt (T1) A-úrslit

10:00-10:45 - Kynbótahross – stóðhestar - kynning

11:15 - 100 m fljúgandi skeið (P2)

12:30 - 100 m fljúgandi skeið (P2) Verðlaunaafhending

13:00 - Fjórgangur (V1) A-úrslit og sameiginlegur sigurvegari í fjórgangi tilkynntur. Fimmgangur (F1) A-úrslit og sameiginlegur sigurvegari í fimmgangi tilkynntur

14:00 - Lokaathöfn og verðlaunaafhending

21:15 -22:00 - Samantekt frá öllu mótinu. 45mín




Fleiri fréttir

Sjá meira


×