Erlent

Heimsbyggðin bíður úrslitanna í ofvæni

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Stuðningsmenn Trumps á kosningafundi í Virginíu þar sem stóryrðin gagnvart Hillary Clinton voru ekki spöruð frekar en venjulega.
Stuðningsmenn Trumps á kosningafundi í Virginíu þar sem stóryrðin gagnvart Hillary Clinton voru ekki spöruð frekar en venjulega. vísir/afp
Bandarískir kjósendur taka í dag af skarið um það hvort þeirra Hillary Clinton eða Donalds Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna. Clinton yrði fyrsta konan sem gegnir þessu valdamikla embætti, en Trump gæti orðið til alls vís.

Hillary Clinton og Donald Trump hafa síðustu daga bæði verið á miklum þeytingi á milli kosningafunda, í von um að næla sér í sem allra flest atkvæði á lokametrunum í þeim ríkjum þar sem óvissan er einna mest.

Í gær kom Clinton fram á kosningafundi í Michigan, Norður-Karó­línu og Pennsylvaníu en Trump notaði síðasta daginn til að heimsækja fjögur af ríkjum Bandaríkjanna: Flórída, Norður-Karólínu, Pennsylvaníu og New Hampshire.

Barack Obama forseti hefur einnig blandað sér í kosningabaráttuna til stuðnings Clinton og stefndi á að koma fram á síðasta kosningafundi hennar í Pennsylvaníu.

„Við erum á góðri ferð,“ sagði Clinton og hét því að unna sér ekki hvíldar fyrr en síðasta atkvæðið hefur verið talið.

Kosið verður í dag en skoðanakannanir sýna að afar mjótt er á mununum, þótt Clinton hafi haft nokkurra prósenta forskot fram á síðasta dag.

Mikil óvissa ríkir um það hvort yfirlýsingar alríkislögreglunnar FBI muni hafa frekari áhrif á fylgi frambjóðendanna. Aðeins tveimur dögum fyrir kosningadag kom nýjasta yfirlýsingin frá James B. Comey, yfirmanni FBI, þar sem hann segist ekki sjá neina ástæðu til að rannsaka tölvupóst Clinton frekar.

Aðeins viku fyrr hafði hann skýrt frá því að í tengslum við rannsókn á fyrrverandi eiginmanni helstu aðstoðarkonu hennar hafi fundist tölvupóstsamskipti við Clinton sem hugsanlega gæti þurft að rannsaka frekar.

Sú yfirlýsing virtist hafa merkjanleg áhrif á skoðanakannanir. Sigurlíkur Donalds Trump jukust töluvert, ekki reyndar vegna þess að fylgi Clintons hafi dalað neitt heldur var það fylgi Trumps sem jókst nokkuð hratt.

Demókratar reiddust mjög þessari yfirlýsingu og hafa sumir sakað FBI um að draga taum Trumps, en þegar nýjasta yfirlýsingin kom sagði Trump ekkert að marka FBI: „Hillary Clinton er sek. Hún veit það. FBI veit það,“ sagði hann og sakaði FBI um að vera á hennar bandi.

Síðustu dagana hefur bilið á milli þeirra staðið nokkurn veginn í stað og verið í kringum tvö prósent, sem þýðir að ekki þarf mikið til þess að Trump hrósi sigri þótt Clinton hafi vissulega vinninginn enn þá.

Mestar líkur standa til þess að Clinton hafi sigur á Trump, líklega frekar nauman, en hvorki er hægt að útiloka að Trump vinni nauman sigur á henni né að Clinton sigri þegar allt kemur til alls með miklum yfirburðum. Þessir tveir óvæntu möguleikar eru báðir í raun vel mögulegir, miðað við skoðanakannanir síðustu daga og vikna.

Venjulega taka úrslitin að skýrast á miðvikudagsmorgni, en það gæti dregist verulega ef litlu munar í einhverjum ríkjum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Stuðningsmenn Hillary Clintons á útifundi í Flórída á sunnudag þar sem Barack Obama forseti kom fram.vísir/afp

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×