Erlent

Heimila Írökum að aðstoða Kúrda í Kobane

Atli Ísleifsson skrifar
Stór hluti íbúa sýrlensku borgarinnar Kobane hafa flúð borgina síðustu vikur.
Stór hluti íbúa sýrlensku borgarinnar Kobane hafa flúð borgina síðustu vikur. Vísir/AFP
Tyrknesk stjórnvöld hafa ákveðið að heimila írökskum Kúrdum að fara um Tyrkland og yfir sýrlensku landamærin til að leggja baráttunni lið gegn liðsmönnum ISIS í borginni Kobane.

Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, segir að viðræður vegna málsins haldi áfram en Tyrkir hafa til þessa neitað hermönnum Kúrda að fara um Tyrkland til Sýrlands.

Á vef BBC segir að stór hluti íbúa Kobane hafi flúið borgina síðustu vikurnar vegna átaka sveita ISIS og hersveita Kúrda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×