Viðskipti innlent

Háskólinn í Reykjavík á hlut í sex „spin-off“ fyrirtækjum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir bæði nemendur og starfsmenn skólans hafa átt þátt í stofnun „spin-off“-fyrirtækjanna.
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir bæði nemendur og starfsmenn skólans hafa átt þátt í stofnun „spin-off“-fyrirtækjanna. Vísir/Vilhelm
Háskólinn í Reykjavík á eignarhlut í sex svokölluðum „spin-off“-fyrirtækjum sem hafa orðið til innan veggja skólans og með verulegu framlagi hans á síðustu árum.

Fyrirtækin sem um ræðir eru: Videntifier Technologies, Skema, ReKode Education, FiRe, 3Z Pharmaceuticals og Línudans. Skema og 3Z eru í dag með hluta af starfsemi sinni innan HR.

„Orðið spin-off er notað þegar þekking verður til innan háskóla og hann hefur lagt verulega til þess að gera þekkinguna mögulega ásamt uppfinningamönnunum sem yfirleitt eru starfsmenn skólans eða nemendur,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, og heldur áfram:

„Þegar þessi verkefni koma út úr þessu umhverfi eru þau orðin að fyrirtækjum. Þetta er vel þekkt um allan heim en sérstaklega í Bandaríkjunum.“

Þessi spin-off-fyrirtæki eru að sögn Ara eingöngu lítill hluti af þeim fjölda fyrirtækja sem verða til innan skólans. Hann segir að könnun sem hafi verið gerð meðal útskrifaðra nemenda árið 2010 hafi sýnt að rúmlega 16 prósent nemenda hafi annaðhvort stofnað fyrirtæki á meðan á námi stóð, eftir að því lauk eða hvort tveggja.

„Fyrir hvert spin-off hjá okkur eru fjölmörg fyrirtæki sem verða til hjá nemendum og starfsmönnum upp úr þeim verkefnum sem verið er að vinna hérna án þess að skólinn sé endilega með verulega aðkomu. Þetta eru allt hlutir sem við ætlum að halda áfram að efla og styðja við.“

Ari segir skólann hafa lagt mikla áherslu á að kenna nemendum nýsköpun þar sem markmiðið sé að búa til fólk sem geti skapað sín eigin tækifæri og ný verðmæti.

„Við gerum það með fjölda námskeiða. Sum eru beint miðuð að því að kenna nýsköpun, önnur eru eins og stærri verkleg námskeið þar sem nemendurnir beita nýsköpun til að leysa raunveruleg viðfangsefni og gera nýja hluti. Þannig að þegar fólk kemur með hugmyndir, hvort sem það eru starfsmenn eða nemendur, þá reynum við að beina þeim í réttar áttir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×