Erlent

Harðvítugar deilur í fjölskyldu Helmut Kohl heitins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, ásamt Maike Kohl-Richter, seinni konu sinni.
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, ásamt Maike Kohl-Richter, seinni konu sinni. vísir/epa
Harðvítugar deilur í fjölskyldu Helmut Kohl heitins, fyrrverandi kanslara Þýskalands, eru nú í kastljósi fjölmiðla en Kohl lést þann 16. júní síðastliðinn.

Fjallað er um málið á vef BBC þar sem segir frá því að sonur Kohl, Walter Kohl, hafi farið að heimili föður síns heitins í Ludwigshafen ásamt tveimur barnabörnum kanslarans fyrrverandi, barið þar að dyrum en enginn hafi svarað þeim eða viljað hleypa þeim inn.

Syninum og barnabörnunum var síðan vísað frá heimilinu af lögrelgu sem tjáði Walter Kohl að nálgunarbann væri í gildi sem meinaði honum aðgang að húsinu.

Walter Kohl, syni Helmut Kohl úr fyrra hjónabandi, var vísað burt af lögreglu frá heimili föður síns heitins. Með honum í för voru barnabörn kanslarans fyrrverandi.vísir/epa
Fjölmiðlar urðu vitni að þessu öllu þar sem fjöldi ljósmyndara, myndatökumanna og blaðamanna hafði komið sér fyrir fyrir framan heimili Kohl heitins.

Atburðurinn hefur varpað ljósi á deilurnar í fjölskyldunni þótt það hafi verið á flestra vitorði að Walter Kohl og seinni konu föður hans, Maike Kohl-Richter, hafi aldrei komið saman. Í kjölfarið á sennunni við heimili Kohl sendi lögfræðingur Kohl-Richter frá sér yfirlýsingu þar sem hún kenndi syninum um allt saman.

Kohl-Richter er hagfræðingur sem starfaði lengi fyrir kanslarann fyrrverandi og er ekki óumdeild. Kohl og Kohl-Richter giftust árið 2008 eftir að hann varð fyrir alvarlegum heilaskaða sem gerði það að verkum að hann gat lítið tjáð sig.

Kohl-Richter er 30 árum yngri en Kohl og eftir að þau giftu sig einangraði kanslarinn sig frá aðstandendum og vinum og sást sjaldan opinberlega.

Grafreitur Kohl-fjölskyldunnar í Ludwigshafen en Helmut Kohl verður ekki grafinn þar við hlið Hannelore Kohl, fyrri eiginkonu sinnar.vísir/epa
Kohl verður ekki grafinn í fjölskyldugrafreitnum í Ludwigshafen við hlið fyrri eiginkonu sinnar, Hannelore Kohl. Hún var með ofnæmi fyrir sólarljósi og framdi sjálfsvíg árið 2001.

Í stað þess að vera grafinn í Ludwigshafen verður Kohl grafinn við Speyer-dómkirkjuna í vesturhluta Þýskalands. Þar mun Kohl-Ricther einnig vera grafin en þau breytu grafreitum sínum fyrir tveimur árum síðan.

Kohl er einn dáðasti stjórnmálamaður þýskrar sögu. Hann varð kanslari Vestur-Þýskalands árið 1982 og varð síðan fyrsti kanslari sameinaðs Þýskalands og gegndi því embætti frá árinu 1990 til 1998.


Tengdar fréttir

Helmut Kohl er látinn

Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, er látinn. Hann var 87 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×